Rændu veiðistöngum fyrir milljónir króna Bjarki Ármannsson skrifar 25. ágúst 2014 14:51 Innan úr húsinu þaðan sem stöngunum var stolið. Mynd/Af Facebook-síðu West Ranga
Brotist var inn í veiðihús við Ytri Rangá í nótt og veiðibúnaði að virði samtals nokkurra milljóna króna stolið. „Það töpuðu allir nokkrum stöngum, við leiðsögumennirnir og kúnnar líka,“ segir Guðmundur Atli Ásgeirsson leiðsögumaður, einn þeirra sem kom að húsinu í morgun. „Þeir fóru meira að segja í frystikisturnar og rændu laxi. Þeir fóru í kisturnar og tæmdu þær allar, þetta eru örugglega tíu kíló af laxi.“ Mest munar þó um veiðistangirnar. Um tuttugu stangir voru teknar og nemur tjónið sennilega um fimm milljónum króna. Að sögn Guðmundar var brotist inn í húsið, sem var læst, í gegnum glugga. „Þeir vissu alveg hvað þeir voru að gera,“ segir hann. „Sem betur fer var ekki farið í bílinn minn. Útlendingarnir voru líka ekki allir búnir að setja saman stangir, þeir duttu í það í gær og fóru ekki að veiða um eftirmiðdaginn. Þannig að þeir áttu eftir að setja saman allar stangirnar, annars hefði tjónið orðið ábyggilega tvöfalt meira.“ Að sögn Guðmundar er um sjaldgæfar stangir að ræða sem eigendurnir myndu þekkja strax aftur. Hver sem hefur upplýsingar um þjófnaðinn er beðinn um að hafa samband við lögregluna á Hvolsvelli eða senda skilaboð á johannes@westranga.is.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira