Lagning þaks yfir fangelsi á hraða snigilsins Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 27. ágúst 2014 15:00 Frá Sogni. Vísir/Stefán
Þrátt fyrir að það hafi fengist fimmtán milljónir króna til að smíða þak yfir útigarð fangelsisins á Sogni í Ölfusi fyrir tveimur árum bólar ekkert á þakinu. Ástæðan er seinagangur hjá Framkvæmdasýslu ríkisins segir Margrét Frímannsdóttir, forstöðumaður fangelsins, og talar um hraða snigilsins í því sambandi. Fangar á Litla Hrauni vinna ýmis störf innan fangelsins eins og í þvottahúsinu, númeraplötugerðinni og við að þrífa bíla svo eitthvað sé nefnt. Margrét segir að byggja þurfi við Litla Hraun fyrir vinnuaðstöðu fanga. „Við erum þar með gamalt hús, fjós og hlöðu þar sem við erum að vinna í samstarfi við Íslenska gámafélagið að vinna endurnýjanlegan málm úr gömlum vélum og dóti. Hins vegar stendur hlaðan alveg tóm. Það þarf að gera við það húsnæði, sem kostar fimmtán til tuttugu milljónir en þeir peningar eru bara ekki til,“ segir Margrét. En fréttirnar frá Sogni eru betri, þar er kominn peningur í framkvæmdir. „Já, á Sogni erum við með útigarð sem stendur til að byggja yfir og fékkst fjárveiting fyrir tæpum tveimur árum í það, fimmtán milljónir. Það mál er ennþá hjá Framkvæmdasýslu ríkisins. Þetta er nú lítil framkvæmd að setja þak yfir útigarð svo hægt sé að skapa aðstöðu fyrir vinnu og líka fyrir íþróttir. Svona gengur þetta með hraða snigilsins en vonandi kemur það,“ segir Margrét ennfremur. Hún segist vera ánægð með ástandið í fangelsunum. „Ég tel að það sé verið að vinna mjög gott starf í fangelsunum þrátt fyrir skort á fjármagni þá er verið að nýta það mjög vel. Maður sér líka viðhorfsbreytingu hjá þeim sem eru vistaðir í fangelsum að vilja vinna með fangelsisyfirvöldum að gera góð fangelsi enn betri,“ segir Margrét.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira