Segir tímaspursmál hvenær stórslys verður Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 27. ágúst 2014 20:00
Foreldrar í Vatnsenda í Kópavogi segja gangbraut á fjölförnum gatnamótum í hverfinu mikla slysagildru. Sjö ára gamall sonur Erlu Guðmundsdóttur var fluttur á slysadeild Landspítalans um áttaleytið í morgun eftir að keyrt var á hann við gangbrautina, þar sem hann fór yfir á hjóli. Því er skemmst frá því að segja að keyrt var á tólf ára gamlan bróður hans á sama stað í maí á þessu ári þar sem hann var á leiðinni í skólann. Meiðsli drengjanna voru sem betur fer ekki alvarleg, en Erla segir í raun bara tímaspursmál um hvenær stórslys verður. Staðsetning gangbrautarinnar sé afleit. „Gangbrautin er alltof nálægt hringtorginu svo ökumenn sjá ekki gangandi vegfarendur, hvað þá börn. Svo eru engir ljósastaurar sem lýsa svæðið upp. Nú hafa báðir synir mínir slasast þarna og það er of mikið, það er bara tímaspursmál hvenær stóra slysið verður,“ segir Erla. Dagmar Guðmundsdóttir býr við gangbrautina og segir slys bræðranna ekki einsdæmi. Þar sé reglulega keyrt utan í gangandi vegfarendur. Hún segir íbúa hverfisins hafa miklar áhyggjur af stöðu mála. Dagmar og Erla hafa haft samband við Kópavogsbæ vegna málsins en segjast ekki hafa fengið nein viðbrögð. „Við ætlum að gera allt sem við getum svo þessu verði breytt,“ segir Erla. Í tilkynningu frá Kópavogsbæ fimmtudaginn 28.ágúst segir:"Ábendingum um slysahættu á gatnamótum Vatnsendavegar og Breiðahvarfs er tekið mjög alvarlega hjá Kópavogsbæ. Hér hjá bænum er verið að kalla eftir nánari upplýsingum um slysið í gær, þegar ekið var á dreng á gatnamótunum. Í framhaldinu verður umferðaöryggi á svæðinu skoðað nánar."
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira