Björguðu hval úr neti trillukarls í Skagafirði Kjartan Atli Kjartansson skrifar 28. ágúst 2014 12:20
Á vef Landhelgisgæslunnar má nú sjá myndband frá því þegar áhöfn Ægis losaði hnúfubak úr netatrossu í gærmorgun. Á síðunni kemur fram að skipstjórinn á Gammi SK 12 hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar rétt rúmlega ellefu í gærmorgun og óskaði eftir aðstoð gæslunnar við að losa hnúfubak sem hafði fest sig í netatrossu sem hann var að draga á Skagafirði. Á vef Landhelgisgæslunnar kemur fram að skipstjórinn hafði sjálfur reynt að losa hnúfubakinn en hafði við það tapað hakanum sínum þegar hvalurinn sló hann frá sér með sporðinum. „Taldi hann sig því ekki eiga annara kosta völ en að óska eftir aðstoð. Áhöfn varðskipsins Ægis var við vinnu um borð við höfnina á Sauðárkróki og hélt léttabátur skipsins áleiðis út fjörðinn og var kominn að hvalnum rúmum hálftíma eftir að óskin barst,“ segir á vef gæslunnar. Þar segir einnig:„Brösulega gekk að nálgast skepnuna en hann reyndi að synda sig lausan með tilheyrandi buslugangi og látum. Það var ljóst að blýteinn netatrossunnar var fastur um sporðinn á hvalnum og lítið gekk hjá honum að slíta sig frá. Annar hnúfubakur var þá kominn á staðinn og virtist vera að meta aðstæður. Það fór svo að lokum að varðskipsmenn náðu að skera á teininn svo hnúfubakurinn losnaði og spratt af stað. Hann þakkaði fyrir sig með einu sporðakasti og sást svo ekki meir.“Hér að neðan má sjá myndskeið af björguninni. Áhöfn varðskipsins Ægis bjargar hnúfubak á Skagafirði/Coast guard rescues a humpback whale, entangled in a n from Landhelgisgaeslan on Vimeo.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira