Vill að réttarhöldunum verði sjónvarpað í beinni útsendingu Stefán Ó. Jónsson skrifar 29. ágúst 2014 17:02 Þó að barnaverndaryfirvöld stingi höfðinu í sandinn núna, þá er ég alveg með á hreinu að þetta varði við barnavendarlög," segir Gylfi.
Gylfi Ægisson hefur sent frá sér tilkynningu í kjölfar frétta af hugyndum Kristínar Sævarsdóttur um að sækja hann til saka fyrir ærumeiðandi ummæli í garð samkynhneigðra. Þar segir hann tíðindin vera miklar gleðifréttir og fari svo að málið endi fyrir dómstólum muni hann krefjast þess að réttarhöldunum verði sjónvarpað í beinni útsendingu, „til að allur skíturinn komi í ljós,“ eins og þar stendur. Hann ítrekar að hann hafi undir höndum ljósmyndir frá Gleðigöngunni og skrif einstaklings sem Gylfi segir að hafi „farið með börnin sín burt frá ósómanum“. Þá eigi Gylfi einnig ljósmynd af karlmanni í leðurbuxum „opnum að framan og sást í brókina og falið typpið þar bak við“ sem renni stoðum undir fullyrðingar hans um klámvæðingu hátíðarinnar. Gylfi fór með málið til lögreglunnar eftir Gleðigönguna í fyrra en sérstakur saksóknari ákvað þó að viðhafast ekkert þegar Gylfi hugðist sækja Hinsegin daga til saka. „Ég hef trú á að þjóðin væri ekki á sama máli enda er ég með fullt að tölvupóstum frá hinum almenna borgara sem hefur blöskrað klámvæðing hinsegin daga í gegnum árin og eins get ég sýnt helling af myndum úr þessum göngum sem sanna mitt mál,“ segir Gylfi í tilkynningunni. Hann vandar dómsvaldinu, Barnaverndarnefnd, yfirvöldum og borgarstjóranum ekki kveðjurnar í yfirlýsingu sinni og segist ekki óttast möguleg málaferli. „Ég er tilbúinn að sitja í fangelsi enda kominn á ellilaun, en ef ég vinn málið þarf að reisa fangelsi fyrir þá sem ég taldi upp,“ segir Gylfi og vísar í 93. grein barnaverndarlaga máli sínu til stuðnings. Þar stendur: „Börnum yngri en 18 ára er óheimilt að taka þátt í nektarsýningum eða öðrum sýningum af kynferðislegum toga. Skipuleggjendur slíkra sýninga bera ábyrgð á því að þátttakendur í þeim hafi náð tilskildum aldri.“
Tengdar fréttir Íhugar alvarlega að kæra Gylfa fyrir hatursáróður Margir hafa hvatt Kristínu Sævarsdóttur, stjórnarmann Hinsegin daga, til að leggja fram kæru á hendur Gylfa Ægissyni fyrir ummæli sem bendla samkynhneigða við barnaníð og heilaþvott. 29. ágúst 2014 12:59 Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Erlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira
Íhugar alvarlega að kæra Gylfa fyrir hatursáróður Margir hafa hvatt Kristínu Sævarsdóttur, stjórnarmann Hinsegin daga, til að leggja fram kæru á hendur Gylfa Ægissyni fyrir ummæli sem bendla samkynhneigða við barnaníð og heilaþvott. 29. ágúst 2014 12:59