Útsendingar BBC hafnar aftur Samúel Karl Ólason skrifar 13. ágúst 2014 10:23 Vísir/Getty
Útsendingar BBC World Service eru hafnar aftur á Ísland og sér Vodafone á Íslandi um útsendinguna. Fréttastöðin er á FM-tíðninni 103,5 og er þegar komin í loftið. Þar að auki er stöðin aðgengileg á rás 3198 í IPTV sjónvarpsdeifikerfi Vodafone. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vodafone en þar segir að fyrirtækið hafi gert samning við breska ríkisútvarpið um að hið fyrrnefnda sjái um dreifingu BBC World Service á höfuðborgarsvæðinu og um IPTV sjónvarpsdreifikerfi félagsins um land allt. „Það er ánægjulegt að geta hafið útsendingar BBC World Service að nýju og ýtt þannig undir fjölbreytni á þessu sviði á Íslandi. Fréttastöðin á sér marga hlustendur hér á landi, enda stöðin þekkt fyrir vandaðar fréttaskýringar og þáttagerð frá öllum heimshornum. Vodafone og breska ríkissútvarpið eru einhuga um að tryggja útsendingar á stöðinni hér á landi til framtíðar,“ segir Stefán Sigurðsson, forstjóri Vodafone í tilkynningunni. Peter Horrocks, forstjóri BBC World Service segir hlustendur á Íslandi hafa verið mjög trygga. „Það gleður okkur mjög að ná aftur til þeirra á öldum ljósvakans.“ 365 sá áður um útsendingu BBC en tekin var ákvörðun um að endurnýja ekki útsendingarleyfið í byrjun júlí. Í framhaldi af því var stofnaður undirskriftarlisti á netinu sem nærri því þúsund manns skrifuðu undir.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Katla skelfur Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira