Norðmenn líta til Íslands til að komast hjá viðskiptabanni Gissur Sigurðsson skrifar 14. ágúst 2014 11:55 vísir/stefán
Norskir hagsmunahópar í sjávarútvegi hafa uppi hugmyndir um að landa síld í stórum stíl hér á landi, sem síðan yrði flutt til Rússlands, framhjá viðskiptabanni Rússa á fiskafurðir frá Noregi. Málið verður rætt á fundi allra hagsmunahópanna, sem haldinn verður í dag, fyrir tilstuðlan norska sjávarútvegsráðuneytisins. Reyndar eru svipaðar vangaveltur uppi um Færeyjar, sem eru ekki heldur á bannlista Rússa og segja norskir fjölmiðlar að þarlendir hafi tekið vel í hugmyndina. Norðmenn hafa sérstakar áhyggjur af laxaútflutningi og enn meiri áhyggjur af síldarútflutningi, en þeir selja Rússum um það bil fjórðung af öllum síldarafurðum sínum. Þess vegna er verið að skoða þessa hjáleið. Birgir Ármannsson formaður utanríkismálanefndar Alþingis sagði í viðtali við Fréttablaðið nýverið að menn verði að hafa í huga að ekki sé hægt að fara með viðskipti hingað til lands sem annars hefðu átt sér stað milli Evrópusambandsríkja og Rússa, en á það er að líta að hugmyndir Norðmanna eru þær að norsk síldveiðiskip lönduðu afla sínum hér á landi og seldu hann íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum, sem síðan gætu selt afurðirnar til Rússlands. Upprunaland væri ekki heldur vandamálið því bæði Íslendingar og Norðmenn veiddu þá síld , sem þeir selja Rússum, úr sameiginlega Norsk- íslenska síldarstofninum.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Katla skelfur Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira