Guðrún frá Lundi gaf aðfluttu sveitafólki sveitina sína Gissur Sigurðsson skrifar 14. ágúst 2014 13:00 Dagný Kristjánsdóttir, prófessor í íslenskum bókmenntum. Vísir/Vilhelm
Bókin Afdalabarn eftir Guðrúnu frá Lundi er nú í fyrsta sæti á metsölulista Eymundsson verslana og er sömuleiðis söluhá hjá öðrum bóksölum. Rúm 60 ár eru síðan að bókin kom út og varð hún þá líka metsölubók. Bókin var endurútgefin um síðustu mánaðamót og hefur þegar tekið flugið upp sölulistana. Guðrún frá Lundi var metsöluhöfundur á Íslandi á þriðja aldarfjórðungi síðustu aldar þótt bókmenntafræðingar hafi keppst við að gera lítið úr skrifum hennar. Dagný Kristjánsdóttir, prófessor í íslenskum bókmenntum, hefur leitað skýringa á vinsældum bóka Guðrúnar. Bæði fyrir hálfri öld og svo aftur núna. „Á sínum tíma held ég að Guðrún frá Lundi hafi orðið svo rosalega vinsæl af því að eiginlega allir bæjar- og borgarbúar voru aðfluttir sveitamenn. Þeir vildu lesa um sveitina sem var og hún gaf þeim hana,“ segir Dagný. „En hún var líka ofsalega góður og mikill sagnameistari, spann saman flókna fræði í læsilega sögu með sterkum persónum og dramatík. Fólk féll fyrir þessu og menn rifu út bækurnar hennar.“ Rifjar Dagný upp að sú saga hafi gengið að sjúklingur einn hafi sagst ekki vera tilbúinn að deyja fyrr en hann hefði lesið nýjustu bók Guðrúnar. En hvað ætli skýri þennan áhuga í dag? „Ég held það séu bara sömu sagnatöfrar og áður. Fólk sér þarna breiðar epískar flottar sögur.“ Guðrún frá lundi var 59 ára þegar hún gaf út fyrstu bók sína árið 1946 en alls urðu bækur hennar 27. Var hún orðin 86 ára þegar hún skrifaði síðustu bókina.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Katla skelfur Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira