Innlent

Grimmdin á sér varla hliðstæðu

Birta Björnsdóttir skrifar
Börkur Gunnarsson starfaði sem upplýsingafulltrúi NATÓ í Írak árin 2005 og 2006.
Börkur Gunnarsson starfaði sem upplýsingafulltrúi NATÓ í Írak árin 2005 og 2006.
Grimmdarverk IS liða í Írak undanfarin misseri hafa vakið heimsathygli og þá ekki síst hraður uppgangur þeirra í landinu. 

Það er mjög erfitt að lýsa stöðu mála í landinu, það eru fáir blaða og fréttamenn sem komast inn á þessi svæði þar sem allt umtalið snýst um. Af þessum litlu fréttum sem berast virðast IS-liðar vera komnir með mjög sterka stöðu í vestur og noðurhluta Írak, sem er skelfilegt," segir Börkur Gunnarsson, blaðamaður og  fyrrverandi upplýsingafulltrúi NATO í Írak.

Utanríkisráðherrar aðildarríkja Evrópusambandsins komu saman til fundar í Brussel fyrr í dag og fordæmdu grimmdarverkin. Ákvörðun um mögulega liðveislu við Kúrda, líkt og Bandaríkjamenn og Frakkar hafa samþykkt, liggur hjá hverji ríki fyrir sig.

Börkur segir Kúrda vera þá einu sem virðist standa í lappirnar gegn hinum herská IS liðum, í íraska hernum ríki upplausn.

„Þeir eru miku betur vopnum búnir en hafa einfaldlega flúið af ótta. IS-liðar beita mikilli grimmd, þeir drepa stríðsfanga sína, höggva af þeim hausin og setja þá á stjaka. Íraski herinn hefur einfaldlega ekki haft kjark til að mæta þeim," segir Börkur.

„Þetta er barbarismi sem maður kannast ekki við úr sögunni síðan á tímum Mongóla."

Nouri al-Maliki sagði sig í gærkvöld frá embætti forsætisráðherra landsins, þvert á fyrri yfirlýsingar. Haider al-Abadi, flokksbróður al-Maliki hefur verið falið umboð til að mynda ríkisstjórn í landinu. Börkur segir mikilvægasta verkefni nýs forsætisráðherra að halda landinu sameinuðu, hann megi ekki feta í fótspor forvera síns sem eingöngu hafi hugsað um hagsmuni sjía múslima.



„Þetta er ríki sjía múslima, súnní múslima og kúrda. En líkurnar aukast allaf á því að þetta verði lauslegt samband nokkurra sjálfstjórnaríkja," segir Börkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×