Samfélagið í olnboganum Birta Björnsdóttir skrifar 15. ágúst 2014 20:00
Söngleikurinn Revolution in the Elbow of Ragnar Agnarsson Furniture Painter, eða Uppreisnin í olnboga Ragnar Agnarssonar húsgagnamálara, var frumsýndur á Broadway í New York í vikunni, en þar segir frá óvæntum atburðum í litlu samfélagi sem þrífst inni í olnboganum á áðurnefndum húsgagnamálara.„Þetta er mjög dramatísk og stór saga og þessi súrrealíska umgjörð hefur hefur í raun lítið með söguþráðinn að gera heldur er leið sem ég fer til að segja söguna á frumlegan hátt," segir Ívar Páll Jónsson, höfundur verksins. Tugir manna koma að uppsetningu verksins, sem leikstýrt er af Bergi Þór Ingólfssyni. Tónlistin í verkinu hefur hlotið mikið lof.„Þetta er mjög óhefðbundin söngleikjatónlist. Þetta er svona venjuleg indie-tónlist. Ég fékk hann Stefán Örn Gunnlaugsson með mér til að taka þetta upp og útsetja og það tókst svona frábærlega til. Tónlistin er í fyrsta sæti í verkinu og er ekki bara miðill til að koma texta áleiðis, eins og oft vill vera, heldur er til að skapa stemmningu," segir Ívar Páll. Söngleikurinn hefur fengið misjafna dóma.„Verkið hefur bæði fengið lofsamlega dóma og svo aðra líka. Það eru einhverjir sem skilja ekki hvað verið er að gera og skilja til dæmis ekki hvers vegna þetta gerist inni í olnbga. Gagnrýnendur á þessu sviði eru gjarnan vanari þessum hefðbundnu söngleikjum og er illa við að það fasta form sé brotið upp," segir Ívar Páll. En fáum við landsmenn einhverntíman að berja íbúana í olnboganum á Ragnari augum?„Ég vona það. Ég vona að það séu einhver olnbogabörn á Íslandi sem geti tekið þetta að sér."
Mest lesið Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Hinn grunaði nýlega handtekinn eftir árás á þorrablóti Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Erlent Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Innlent Fleiri fréttir „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Hinn grunaði nýlega handtekinn eftir árás á þorrablóti Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Byrja ekki að sekta á morgun Bein útsending: Alþjóðasamvinna á krossgötum Þörf eftir sértæku húsnæði fyrir yngri en 25 muni „fara verulega vaxandi“ Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Sjá meira