Afar vinsælt Afdalabarn Birta Björnsdóttir skrifar 15. ágúst 2014 20:00
Í bókaverslun í Mjóddinni var í dag verið að fylla á tómar hillur sem alla jafna hýsa eina mest seldu bók landsins um þessar mundir. Metsölubókin sem um ræðir kom fyrst út fyrir 64 árum síðan. Hún nefnist Afdalabarn og er eftir Guðrúnu frá Lundi.„Við vorum nokkur sem stóðum að málþingi um Guðrúnu frá Lundi fyrir nokkrum árum. Þangað mættu hátt í fjögurhundruð manns og við hjá Bókaútgáfunni Sæmundi mátum það sem svo að það væri enn eftirspurn eftir verkum Guðrúnar og með þessarri útgáfu höfum við verið að bæta úr brýnni þörf," segir Guðjón Ragnar Jónasson, starfsmaður Bókaforlagsins Sæmundar, um tilurð endurútgáfunnar. Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa og bókin tekið sér sess á metsölulistum yfir mest seldu bækur landsins nú nokkrum dögum eftir útgáfuna.„Sendingarnar seljast upp hver af annarri. Við tókum eftir því að fyrst kom eldra fólk og keypti hana, fólk sem þekkti til verka Guðrúnar en ánægjan með bókina er fljót að spyrjast út til yngra fólks og nú er ég farin að taka niður biðlista," segir Elín Ósk Ásgeirsdóttir, sölumaður í Eymundsson. Fyrsta bók Guðrúnar, Dalalíf, kom út árið 1946, þegar skáldkonan var 59 ára gömul. Eftir Guðrúnu liggja ellefu rit, þar af meirihlutinn í þónokkrum bindum. Bækur Guðrúnar hafa margar verið ófáanlegar lengi. Dalalíf var endurútgefin síðast árið 2000 en er fyrir löngu uppseld hjá útgefanda.„Hún lýsir þessu gamla sveitasamfélagi vel og það er notalegur tónn í bókunum hennar sem gerir það að verkum að það er gott og gaman að lesa þær. Sjónarhorn Guðrúnar er ef til vill öðruvísi er karlanna sem voru að skrifa á sama tíma," segir Guðjón.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira