Beraði sig í tvígang fyrir 9 ára stúlkum Stefán Ó. Jónsson skrifar 15. ágúst 2014 19:14 MYND/WIKIPEDIA
Hæstiréttur hefur úrskurðað erlendan ríkisborgara búsettan hér á landi í farbann vegna gruns um að hann hafi berað sig fyrir börnum í Sundlaug Reykjanesbæjar í upphafi mánaðarins. Í greinargerð lögreglustjórans á Suðurnesjum segir að föstudaginn 1. ágúst síðastliðinn hafi lögreglu borist tilkynning frá starfsmanni sundlaugarinnar í Reykjanesbæ. Greindi starfsmaðurinn frá því að fyrr um daginn hefði óþekktur aðili verið staðinn að því að bera sig fyrir framan börn sem hafi verið stödd í sundlauginni. Þegar lögreglumenn bar að garði hafði aðilinn verið farinn af vettvangi en lögreglumenn hafi fengið að skoða upptökur úr eftirlitsmyndavél sundlaugarinnar. Við skoðun á upptökunum hafi mátt sjá aðila, sem staddur hafi verið í dýpri enda laugarinnar, bera sig og strjúka getnaðarlim sinn. Hafi mátt sjá börn að leik skammt frá þeim stað sem aðilinn hafi verið á. Daginn eftir, 2. ágúst síðastliðinn, hafi starfsmaður sundlaugarinnar haft samband við lögreglu á nýjan leik og kveðið aðilann vera staddan í sundlauginni. Hafi lögregla farið á staðinn og handtekið manninn. Maðurinn neitaði sök við yfirheyrslur en þá voru honum sýndar myndir af honum í öryggismyndavélum laugarinnar, meðal annars ljósmynd þar sem sjá mátti að getnaðarlimur kærða hafi verið fyrir utan sundskýluna. Maðurinn staðfesti þá að um myndir af honum væri að ræða og gaf þá skýringu að „buxurnar væru of víðar og að hann hefði verið að setja getnaðarlim sinn inn undir buxurnar.“ „Blöðruhálskirtill hans væri í ólagi og þess vegna þyrfti hann stundum að laga liminn eða snerta hann,“ eins og segir í dómi Hæstarétts. Rannsókn málsins er enn á frumstigi og á lögreglan eftir að taka skýrslu af stúlkunum tveimur sem eru báðar fæddar árið 2005. Farið verður fram á að yfirheyrslurnar fari fram í Barnahúsi vegna aldurs stúlknanna. Málið er litið mjög alvarlegum augum og taldi lögreglan víst að maðurinn myndi reyna að flýja land. Því hafi verið farið fram á maðurinn yrði dæmdur í farbann. Hæstiréttur staðfesti svo farbannið á miðvikudag.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Katla skelfur Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira