Innlent

"Gjörsamlega óþolandi“

Stefán Ó. Jónsson skrifar
MYND/TWITTER
Brotist var inn í Kaffihús Vesturbæjar í nótt og öllum verkfærum þaðan stolið.

Þegar eigendurna bar að garði klukkan níu í morgun sáu þeir að hurðin stóð opin og ónýt, rétt eins og myndin ber með sér.

„Þetta er massíf tekkhurð og hún er klofin alveg upp þannig að þetta hafa verið mikil átök,“ segir Gísli Marteinn Baldursson einn af eigendum kaffihúsins.

Gísli segir að innbrotsþjófarnir hafi hreinsað út öll tækin sem inni voru en mörg þeirra höfðu aðstandendur kaffihússins fengið að láni. Búið er að tilkynna innbrotið til lögreglunnar.

„Við sjáum bara hvað setur. Menn hafa boðist til að lána okkur önnur verkfæri þannig að það er ekkert annað í stöðunni en að halda áfram. Við getum ekki látið þetta á okkur fá þó þetta sé gjörsamlega óþolandi.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×