Þingmaður Sjálfstæðisflokksins vill norskar mjólkurkýr til landsins Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 16. ágúst 2014 17:19 Unnur vill sjá norskar rauðflekkóttar kýr á Íslandi.
Þingmaður Suðurkjördæmis, Unnur Brá Konráðsdóttir vill að flutt verði inn nýtt mjólkurkúakyn til landsins og ætlar að leggja fram frumvarp þess efnis á Alþingi í haust. Hún segist vilja sjá norskar rauðflekkóttar kýr á Íslandi. Oft hefur verið rætt um að flytja inn nýtt kúakyn inn til landsins í þeim tilgangi að auka mjólkurframleiðsluna því íslensku kýrnar þykja mjólka of lítið. Nú er bændur hvattir til að láta kýrnar mjólka eins mikið og þeir geta og hafa margir hafið byggingar á nýjum fjósum eða eru að byggja við fjósin sín til að fjölga kúnum. Á Alþingi í haust verður lagt fram frumvarp fram þess efnis að kýr frá Noregi verði fluttar inn til landsins. Fyrsti flutningamaður verður Unnur Brá Konráðsdóttir. „Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að við eigum að flytja inn nýtt kúakyn til þess að leyfa bændum að fá í hendurnar þau tæki og tól, sem gera þeim kleift að efla sína framleiðslu, auka hana og vera þá samkeppnishæfari við erlenda aðila. Ég er að tala um norska kynið, við erum með gögn í höndunum, sem sýna að það er lítil áhætta í þessu fólginn,“ segir Unnur Brá og bætir við. „Ef við ætlum að efla framleiðsluna í mjólkinni þá eigum við að fara þessa leið“. En hvaða rök eru fyrir því að fá nýtt mjólkurkúakyn inn í landið ? „Vegna þess að íslenska kýrin, eins dásamleg og hún er, þá nær hún ekki nægilegri framleiðslu. Við erum að ná þetta að meðaltali fjögurhundruð þúsundum lítrum á Róbót á meðan við erum að horfa upp á í nágrannaþjóðir okkar verða með sjöhundruð þúsund lítra að meðaltali á Róbót, það er himin og haf þarna á milli. Ég tel að það sé rétt að við förum í þessa umræðu, bæði varðandi kjötið og mjólkina, að leyfa íslenskum bændum að fá betri tæki og tól í hendurnar. Síðan er þetta líka þannig með íslensku kúnna að skyldleikaræktun er orðin áhyggjuefni“, segir Unnur Brá. En heldur hún að norsku kýrnar passi í íslensku fjósin ? „Við þurfum auðvitað að skoða það, þeir sem eru að byggja, t.d. á Móheiðarhvoli, eru að byggja fjós með stærri básum. Það eru auðvitað gríðarlegar fjárfestingar sem þarf til að byggja upp öflugar rekstareiningar í mjólkinni og menn hafa verið að leggja í það. Ég tel að þess vegna verðum við að grípa til einhverra ráða til að styðja við bændur að efla framleiðsluna,“ segir þingmaðurinn.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Katla skelfur Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira