Búið að stika Fimmvörðuháls Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 17. ágúst 2014 20:52 Frá vinnu Þorsteins og félaga. Mynd/Þorsteinn Jónsson
Félagar í björgunarsveitinni Dagrenningu hafa lokið við að stika kílómetrana 26 yfir Fimmvörðuháls frá Skógum yfir í Þórsmörk. 460 stikur eru á leiðinni, blámálaðar og númeraðar. „Þetta var stór áfangi,“ segir Þorsteinn Jónsson, formaður Dagrenningar, í samtali við Vísi. Þorsteinn og félagar hafa farið árlega í viku til tíu daga ferð á Fimmvörðuháls undanfarin þrjú ár og nú hefur síðustu stikunni verið komið fyrir. Gönguleiðin frá Skógum að göngubrú yfir Skógaá, um sjö kílómetra leið, hefur aldrei verið stikuð áður. Sett voru upp upplýsingaskilti við Skógafoss og göngubrúna ásamt því að á tveimur stöðum þar á milli voru sett upp upplýsingaskilti um fjarlægðir til beggja enda. Þá var gert við handriði á göngubrú sem brotnaði undan snjóþunga í vetur.Mynd/Þorsteinn Jónsson„Gönguleiðin frá brú eftir vegslóða upp að Baldvinsskála var stikuð af Baldvin sjálfum fyrir fjöldamörgum árum og voru ekki margar orðnar eftir. Þar var því brýn þörf á endurnýjun,“ segir á heimasíðu Dagrenningar. Þorsteinn segir í samtali við Vísi að verkefnið sé styrkt af sveitarfélaginu og ferðamálaráði. Björgunarsveitarmenn vinni verkið í sjálfboðavinnu en um fjáröflunarleið sé að ræða fyrir sveitina. Kaflinn frá Baldvinsskála og niður á Morinsheiði er hættulegasti kafli leiðarinnar og þar hefur Bragi Hannibalsson ásamt fjölskyldu og vinum unnið um árabil að koma niður stikum og hlaða að þeim þar sem þess er þörf. Sett var upp upplýsingarskilti við eldstöðvarnar Magna/Móða. Frá Morinsheiðinni og niður í Strákagil hafa „Vinir Þórsmerkur“ staðið fyrir stikun. Stikur alla leiðina eru nú blámálaðar og er aðal gönguleiðin yfir Fimmvörðuháls blá á göngukortum, en hliðarstígar rauðmerktir.Mynd/Þorsteinn JónssonÞorsteinn og félagar luku verkefninu á miðvikudag. Hann segist hafa haft gaman af því hve ánægt göngufólk á Fimmvörðuhálsi sem hann hitti í liðinni viku var með framtakið. Útlendingar hafi haft á orði að um best stikuðu leið væri að ræða sem það hefði séð. „Það er samt lítið að marka. Ef það er gott veður sést vel á milli stika. Sé svartaþoka sést hins vegar ekkert þrátt fyrir að fjarlægðin milli stika sé allt niður í 40 metrar.“ Stika númer eitt er ofan við tröppurnar við Skógafoss, um númer 140 við göngubrú yfir Skógá, 260 við Baldvinsskála, 340 við Bröttufönn, 444 við tröppur í Strákagili og 460 á tjaldstæðum í Básum. Að meðaltali eru því 56 metrar á milli stikna þó reyndin sé sú að lengra er á milli við upphaf og þéttara þegar komið er upp í þoku. Post by Björgunarsveitin Dagrenning Hvolsvelli.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira