Sextíu og fimm vændismál bíða afgreiðslu Linda Blöndal skrifar 19. ágúst 2014 18:23
Lögreglu hafa borist 68 mál vegna vændiskaupa það sem af er árinu og hafa sex manns hlotið fangelsisdóma í tengslum við kaup á vændi síðan þau voru gerð refsiverð. Fleiri brot liggja að baki hjá þeim sem fá fangelsisdóm þar sem sektargreiðslum er beitt í öllum dómum sem snúa að vændiskaupum. Ákvæði var sett í Hegningarlög árið 2009 um að kaup á vændi yrðu refsiverð og þannig er kaupandinn dreginn til ábyrgðar en ekki seljandi vændisins og getur refsing verið sekt eða fangelsi allt að einu ári. Nú meira en fimm árum síðar hefur lögreglu borist 162 mál vegna vændiskaupa en 65 málum er ólokið. Af þeim tæplega hundrað sem eru afgreidd þá enduðu 52 með ákæru, 6 fengu fangelsisdóma og 43 einstaklingar voru sektaðir en sýknað var í 3 málum.Eingöngu sektaðÞar sem eingöngu er dæmt fyrir kaup á vændi fá menn sektardóm en fleiri brot liggja að baki hjá þeim fengu fangelsidóm. Enginn hefur því farið í fangelsi vegna vændiskaupa einna og sér. Sektum er eingöngu beitt en þær hafa ekki verið háar eða á bilinu 80 til hundrað og tuttugu þúsund krónur. Langstærsti hluti vændismála eða rúm áttatíu prósent virðast snúast eingöngu um kaup á vændi. Margbrotinn vændisheimurHelgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur við Háskóla Íslands, bendir á að heimur vændis sé margbrotinn og ætla megi að ástæða fyrir ástundun þess sé ekki alltaf sú sama og til dæmis séu til hagsmunasamtök vændisfólks víða um heim. Sumt vændi tengis mansali en ekki allt, segir hann. Sá mikli fjöldi vændismála sem komið hefur inn á borð lögreglu það sem liðið er af árinu, eða 86 mál segir ekki endilega til um að meira sé keypt af vændi. Fjöldinn er nánast orðinn sá sami og allt árið í fyrra en þá hafði slíkum málum fjölgað gífurlega á milli ára. Spurningin er frekar sú hvort að harðari refsingar séu leiðin til að fækka kaupum á vændi. Helgi segir erlendar rannsóknir hafa sýnt að svo er ekki, ekki séu endilega tengsl þar á milli þar sem vændisheimurinn lýtur fleiri lögmálum en sem einföld hegningarlög nái yfir.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Fleiri fréttir Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Sjá meira