Maður skorinn illa með dúkahníf á Flúðum Bjarki Ármannsson skrifar 2. ágúst 2014 17:34 Tjaldstæðið á Flúðum. Vísir/Vilhelm
Ungur maður var í nótt fluttur á slysadeild eftir að hann skarst illa í áflogum á skemmtistaðnum Útlaganum á Flúðum. Aðstandendur hins slasaða leita vitna að atburðinum en ungi maðurinn var illa skorinn á fótlegg með dúkahníf, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Athugið að myndin fyrir neðan er ekki fyrir viðkvæma. Að sögn aðstandenda lenti sá slasaði í orðaskaki við karlmann á þrítugsaldri sem hafði verið með alvarlegar hótanir í garð viðskiptavina skemmtistaðarins. Fór svo að mennirnir lentu í stympingum með þeim afleiðingum að sá eldri skar þann yngri illa á fótlegg með dúkahníf sem sá eldri var með á sér. Átökin áttu sér stað á þriðja tímanum í nótt. Ungi maðurinn eyddi stórum hluta næturinnar á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi en er nú kominn heim. Hann ku vera óvinnufær næstu mánuði vegna skurðarins, en dúkahnífurinn fór í gegnum vöðva mannsins. Aðstandendur þess slasaða hyggjast kæra hinn aðilann fyrir tilraun til manndráps og hvetja vitni að slagsmálunum, þá sérstaklega stúlku sem ræddi við hinn slasaða í nótt, að gefa sig fram til Lögreglunnar á Selfossi. Ekki náðist í rannsóknarlögreglu á Selfossi við gerð fréttar en staðfest er að enginn er í haldi vegna atviksins.Hér gefur að líta fótlegg hins slasaða í nótt.Mynd/Aðsend
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira