Tvær minniháttar líkamsárásir og engin kynferðisbrot í eyjum Bjarki Ármannsson skrifar 3. ágúst 2014 09:53 Frá Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í gær. Vísir/Óskar
Að sögn varðstjóra hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum voru tvær minniháttar líkamsárásir tilkynntar í nótt sem teljast að mestu upplýstar en um var að ræða sama geranda í þeim báðum og gisti hann fangageymslur í nótt. Þá komu fimmtán fíkniefnamál upp síðasta sólahringinn en í öllum tilvikum var um neysluskammta að ræða. Engin kynferðisbrot hafa verið tilkynnt á Þjóðhátíð til þessa. Hópur sjálfboðaliða á vegum Forvarnarhóps ÍBV er á hátíðinni sem hefur dreift varningi með hvatningarorðum gegn kynferðisbrotum undir merkjum Bleika fílsins. Hópurinn hefur það slagorð að Bleikur fíll sé í stofunni, hann heiti nauðgun og hópurinn ætli að „moka honum út.“ Vakthafandi varðstjóri hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum sagðist telja að starf þessa hóps hafi skipt miklu máli. Þá er talið að fjölgun öryggismyndavéla í Herjólfsdal hafi sitt að segja. Talið er að fjórtán þúsund manns séu á Þjóðhátíð núna en gestum hefur fjölgað jafnt og þétt þegar liðið hefur á helgina en hátíðin mun ná hámarki í kvöld með hinum árlega Brekkusöng sem verður í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Bravo og á Bylgjunni í kvöld.Mörg mál í nótt Nóttin var erilsöm hjá lögreglunni á Akureyri. Fimmtíu mál komu upp, þó flest vegna hávaða og minni háttar drykkjuláta. Tvö fíkniefnamál komu upp en engin líkamsárás hefur verið kærð. Þá gistu þrír fangageymslur hjá lögreglunni á Akureyri vegna ölvunar og óspekta. Á Ísafirði fór skemmtanahald almennt vel fram en einn var tekinn fyrir ölvunarakstur og gisti fangageymslur lögreglu í kjölfarið. Nóttin var að öðru leyti róleg að sögn lögreglunnar á Ísafirði og hafa gestir Mýrarboltamótsins verið til fyrirmyndar. Rétt fyrir klukkan fimm var einn handtekinn í miðbæ Reykjavíkur fyrir að kasta glerflösku af stuttu færi í andlit annars manns en að sögn lögreglu slapp hann furðuvel við alvarlega áverka. Árásarmaðurinn var vistaður fyrir þessa mjög svo hættulega árás og var nokkuð ölvaður. Fyrr um kvöldið eða um ellefu leytið var tilkynnt um mann sem var að reyna að skemma bifreiðar og reyndist hann vera talsvert ölvaður og búinn að innbyrða örvandi efni í rúma viku og lítið sofið á þeim tíma að sögn lögreglu. Mál hans verður skoðað með morgninum. Að öðru leyti gekk nóttin nokkuð vel í höfuðborginni.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira