Björgunarsveitarmenn á vakt við Sólheimajökul heimir már pétursson skrifar 4. ágúst 2014 13:19 Óvissuástandi var í gær lýst yfir við sporð Sólheimajökuls. Sporðurinn hefur risið um 1,5 metra og hætta á að það brotni upp úr honum. mynd/hag
Bílastæði sem er næst jökullóni við Sólheimajökul hefur verið lokað og fólki er ráðlagt frá því að fara að eða upp á neðsta hluta jökulsins. Talin er hætta á að það brotni upp úr jöklinum sem risið hefur um einn og hálfan metra á undanförnum dögum. Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Hvolsvelli ákváðu í gærkvöldi að lýsa yfir óvissustigi við Sólheimajökul. Í tilkynningu segir að undanfarnar vikur hafi aðstæður við sporð Sólheimajökuls breyst hratt. Sporður jökulsins gangi nú fram í jökullón og að undanförnu hafi jakar brotnað framanúr jökulsporðinum og fallið í lónið. Guðmundur Ingi Ingason varðstjóri hjá lögreglunni á Hvolsvelli segir að við það að jökullinn gangi fram í lónið lyftist sporður jökulsins og nú síðustu daga hafi fremsti hluti hans lyfst um 1,5 metra. „Það er búið að loka fyrir umferð að neðra bifreiðastæðinu þarna við jökullónið. Þannig að nú leggur fólk lengra frá,“ segir Guðmundur Ingi. Hins vegar geti fólk farið eftir gönguleið austan meginn við jökulsporðinn án þess að fara inn á hann. Óvissustig verði að minnsta kosti þangað til sérfræðingar séu búinir að kanna aðstæður. „Almannavarnadeild og lögreglustjóri á Hvolsvelli tóku ákvörðun í gærkvöldi um að setja þetta óvissustig á. Við erum með vakt þarna í dag. Björgunarsveitin Víkverji í Vík er með tvo menn þarna til að leiðbeina fólki,“ segir Guðmundur Ingi. Menn telji réttast að taka enga áhættu á meðan ekki sé búið að kanna málið frekar sem gert verði á næstu dögum. „Ef hann brestur veit maður aldrei hvað getur gerst. Það er náttúrlega erfitt ef þetta fer allt saman af stað. Þá gætu hlutirnir gerst fljótt og þá kemur kannski flóð í kjölfarið, fljóðbylgja. Það gæti brotnað upp úr honum og það eru farin að heyrast hljóð í honum,“ segir Guðmundur Ingi Ingason lögregluvarðstjóri á Hvolsvelli.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira