Kaldir og örmagna af þreytu Stefán Ó. Jónsson skrifar 5. ágúst 2014 15:53 Hér má sjá kajakana þrjá sem áttu í hlut MYND/AÐSEND
Þrír kajakræðarar voru hætt komnir út af Munaðarnesi í Árneshreppi á Ströndum í gærkvöldi, þegar einn datt úr báti sínum og hinir tveir komust við illan leik og hraktir til lands. Snarráður heimamaður bjargaði þeim þriðja aðfram komnum í sjónum. Þeir voru að róa frá Ingólfsfirði, en úti af Munaðarnesi lentu þeir í ölduróti og allt fór úrskeiðis. Fólk í landi fylgdist með ferðum þeirra og hringdi í bæinn Munaðarnes og báðu Birgi Guðmundsson, sem þar hefur sumardvöl, að gá að mönnunum, og sá hann þá hvers kyns var: „Við urðum semsagt var við að mennirnir voru búnir að hvolfa bátunum yfir sig og voru bara á reki tveir þeirra voru komnir upp í land hérna og náðu að bjarga sér af sjálfsdáðum. Einn þeirra komst ekki í land hérna og lenti í brimi hérna í Munaðarnesskerjum sem er einhvern hálfan kílómeter frá landi.En er það ekki hættulegt fyrir þig að sigla þangað?„Þetta var svosem ekkert alveg hættulaust en ekki þannig held ég. En hann var kominn í brimið og ég komst að honum og náði honum um borð og svo komum við okkur bara út úr þessu og komust í land.“Var hann þá orðinn mjög þrekaður?„Já, hann var mjög þrekaður. Bæði kaldur og bara örmagna af þreytu þannig að það hefði kannski ekki mátt miklu muna.“En hinir tveir? Þeir voru líka blautir og hraktir, ekki satt?„Jújú, sérstaklega var annar þeirra þreyttur og kaldur en þeir náðu að bjarga sér í land og var svosem allt í lagi með þá.“En þeir hefðu ekki getað bjargað þeim þriðja eða hvað?„Nei, þeir vissu ekkert hvar hann var. Það var það langt á milli þeirra.“En svo voru þeir allir teknir inn í hús til að hlýja þeim?„Jájá, svo var bara her manns kominn hérna og það var hlúð sérstaklega að þessum eina hérna og komið hlýju í skrokkinn á honum. Hann náði sér á svona tveimur-þremur tímum.“Hvernig fóruð þið að því að hlýja þá upp?„Það var bara nuddað og gefið heitt að drekka og svosem ekkert mikið annað en það,“ sagði Birgir Guðmundsson í Munaðarnesi.
Mest lesið Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Innlent Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið Innlent Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Innlent Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Innlent Segir að honum hafi gengið illa að sofna vegna hræðslu Innlent Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Innlent Enn ekkert spurst til Hákonar Innlent Fleiri bitnir af hundunum Innlent „Það þarf kjark til að viðurkenna mistök“ Innlent Mótmælendur trufluðu þingfund Innlent Fleiri fréttir Höggið verði mikið fyrir ríkisstjórnina segi þjóðin nei Engar vísbendingar um kvikusöfnun en ríflega sjö hundruð skjálftar Fleiri bitnir af hundunum Hagsmunir barna ágætlega tryggðir í „bagalegu óyndisúrræði“ „Þá þurfum við að gera miklu betur“ Flokkur fólksins mælist utan þings Skortur á aðstoð, mótmæli og höggstaður á ríkisstjórn Enn ekkert spurst til Hákonar Stærsti skjálfti á svæðinu síðan 2022 Mótmælendur trufluðu þingfund Má heita Freyjó og Sifjar en ekki Mikhael „Það þarf kjark til að viðurkenna mistök“ Myndataka í lágloftunum vekur athygli Grunaður barnaníðingur í varðhaldi á grundvelli almannahagsmuna Syngjandi dúx Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Segir Ragnar Þór afhjúpa vanþekkingu á skólastarfi Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið „Andrúmsloftið er þungt og það eru allir slegnir“ Andlát á Hólmsheiði og skammtímasamningur á borðinu í flugdeilunni Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Á fimmta hundrað skjálftar mælst í hrinunni Segir að honum hafi gengið illa að sofna vegna hræðslu Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsbraut Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Engin Icelandair-þota sást á flugsýningunni „Það er enginn réttindagæslumaður starfandi á landsbyggðinni“ Senda loftbelgi á loft á hálftíma fresti á meðan sólmyrkvinn stendur yfir Undirbúa íbúafund þar sem farið verði yfir stöðu mála Sjá meira