Ökuníðingur á stolnum bíl ógnaði golfurum á Nesinu Gissur Sigurðsson skrifar 6. ágúst 2014 07:02 Vegfarandi náði myndbandi af eltingaleik lögreglu áður en bíllinn endaði ofan í grunninum. Áður hafði hann ekið inn á golfvöllinn á Seltjarnarnesi.
Ökuníðingur í mjög annarlegu ástandi, endaði ökuferð á stolnum sendibíl, ofan í húsgrunni á svonefndum Lýsisreit í grennd vð JL húsið við Hringbraut um ellefuleytið í gærkvöldi, þar sem bíllinn vóg salt á kanti ofan í grunninum. Áður hafði hann ekið á miklum hraða eftir gangstíg frá Gróttu og inn á golfvöllinn úti á Nesi, þar sem golfiðkendur áttu fótum fjör að launa. Áður voru vitni búin að láta lögreglu vita af manninum, en hann virti stöðvunarmerki lögreglumanna að vettugi og ók utan í tvo lögreglubíla, sem reyndu að hefta för hans. Skyndilega beygði hann svo út af Eiðsgranda og ók í gegn um hlið að á girðingu umhverfis grunninn, þar sem hann stöðvaðist loks og vóg salt á háum kanti, en þá tóku að minnstakosti fimm lögreglubílar þátt í eftirförinni. Lögregla kallaði á kranabíl, sem dró bílinn af kantinum og var ökumaðurinn handtekinn. Hann verður yfirheyrður í dag þegar víman verður runnin af honum. Maðurinn á yfir höfði sér margvíslegar kærur fyrir tiltækið, en mildi þykir að allir, sem á vegi hans urðu, skuli hafa sloppið ómeiddir. Hér fyrir neðan má sjá myndband sem vegfarandi náði af eltingaleiknum í gær.
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Fleiri fréttir Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Sjá meira