Golfvöllurinn ekki mikið skemmdur eftir ökuníðinginn Stefán Ó. Jónsson skrifar 6. ágúst 2014 13:51
Yfirheyrslur fara að hefjast yfir ökuníðingi, sem ógnaði lífi og limum fólks í gærkvöldi með ofsaakstri og var undir sterkum áhrifum fíkniefna. Hann á yfir sér kærur fyrir fjölmörg brot. Hann var á stolnum sendibíl og endaði ökuferðina ofan í húsgrunni á svonefndum Lýsisreit í grennd við JL húsið við Hringbraut um ellefu leitið í gærkvöldi, þar sem bíllinn vó salt á háum kanti ofan í grunninum. Áður hafði hann ekið á miklum hraða eftir gangstíg frá Gróttu og inn á golfvöllinn úti á Nesi, þar sem golfiðkendur áttu fótum fjör að launa. Áður voru vitni búin að láta lögreglu vita af manninum , en hann virti stöðvunarmerki lögreglumanna að vettugi og ók utan í tvo lögreglubíla, sem reyndu að hefta för hans. Skyndilega beygði hann svo út af Eiðsgrandanum og ók í gegn um hlið á girðingu umhverfis grunninn, þar sem hann stöðvaðist loks og vó salt á háum kanti, eins og áður sagði, og þorði ekki út úr bílnum. Þegar þar var komið sögu tóku að minnsta kosti fimm lögreglubílar þátt í eftirförinni. Lögregla kallaði á kranabíl, sem dró bílinn af kantinum og náðist ökumaðurinn út og var þegar handtekinn.Haukur Óskarsson, framkvæmdastjóri Nesklúbbsins og hans menn könnuðu ummerki á golfvellinum snemma í morgun. „Hann virðist hafa farið töluverðan hring um völlinn en þetta eru ekki alvarlegar skemmdir við fyrstu sín. Við tókum stöðuna á þessu klukkan sex í morgun og þetta virðist hafa sloppið að mestu en vissulega markar hér og þar.“En fólkið sem var þarna, var það ekki skelkað?„Það var skelkað og átti á köflum fótum sínum fjör að launa. Þetta var óheppilegt og leiðinlegt en sem betur fer virðist hafa sloppið að mestu,“ sagði Haukur Óskarsson á Nesvellinum. Líklegt er að mál ökuníðingsins fari fyrir dómstóla, fremur en það verði leyst með sektargreiðslum, en mildi þykir að allir, sem á vegi hans urðu, skuli hafa sloppið ómeiddir.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira