Fóru á rúntinn og fengu brotsjó yfir bílinn Kjartan Atli Kjartansson skrifar 6. ágúst 2014 16:51 Atburðurinn náðist á myndband sem má sjá hér að neðan. „
Þetta er eitthvað sem ábyggilega engan órar fyrir; að fara á rúntinn og fá brotsjó yfir bílinn," segir Sigurður Guðfinnsson um myndband sem birtist af honum og vini hans Leifi Guðjónssyni á Facebook-síðunni Grindavík myndir. Myndbandið má sjá hér að neðan. Viðar Oddgeirsson, fyrrum myndatökumaður Ríkissjónvarpsins, birti myndbandið sem er orðið fimmtán ára gamalt. Það var tekið upp þann 1. febrúar 1999. Þar sést hvernig mikill sjór gengur yfir höfnina í Grindavík, þar sem Leifur Guðjónsson hafði lagt bílnum sínum. Bíllinn fær mikinn sjó yfir sig og reyna björgunarsveitarmenn að bjarga bílnum. Sigurður Guðfinsson lenti í þessum hremmingum með Leifi. Sigurður sést í myndbandinu spariklæddur. Hann man enn vel eftir þessu kvöldi: „Já, heldur betur. Við vorum á rúntinum og lögðum úti á bryggju. Veðrið var slæmt en ekki nærri því eins slæmt og það varð. Við sitjum þarna í bílnum á bryggjunni og erum að kjafta saman. Síðan kemur allt í einu brotsjór á bílinn. Leifur reyndi að kveikja á bílnum en ekkert gekk," rifjar Sigurður upp og heldur áfram: „Við gerðum okkur ekki grein fyrir því hversu mikill sjór átti eftir að ganga þarna yfir og vorum bara nokkuð rólegir eftir þessa fyrstu öldu. Bíllinn fór ekki í gang, þannig að við sátum þarna áfram og héldum áfram að spjalla. Síðan gekk enn meiri sjór yfir bryggjuna og endaði með því að bíllinn var kominn á flot á svipstundu." Þeir félagarnir kölluðu á hjálp sem barst nokkuð skjót. „Björgunarsveitin og slökkviliðið kom þarna og hjálpaði okkur. Við þurftum að stökkva um borð í annan bát. Þegar maður skoðar myndbandið sést að við vorum klárlega í hættu. Ef okkur hefði rekið út úr höfninni hefði það getað endað illa, því þarna er mikið sog." Bíll Leifs var gjörónýtur eftir þetta. „Það versta er að Leifur var nýbúinn að kaupa bílinn. Hann var búinn að eiga hann í minna en mánuð þegar þetta gerðist. Hann var búinn að kaupa nýjar felgur og fleira. Menn reyndi að láta bílinn síga ofan í Seltjörn og reyndu þannig að ná seltunni af bílnum. En hann hafði allur ryðgað, bremsur og fleira. Bíllinn var bara dæmdur ónýtur." Hann segir að sagan sé rifjuð upp reglulega í Grindavík. „Já, til dæmis var þetta tekið fyrir í afmæli Leifs um daginn. Þetta er eitthvað sem gleymist seint, það er alveg á hreinu." Post by Viðar Oddgeirsson.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira