Einar Kristján nýr sveitarstjóri Húnavatnshrepps Atli Ísleifsson skrifar 6. ágúst 2014 18:19 Einar Kristján Jónsson var valinn úr hópi sextán umsækjenda.
Einar Kristján Jónsson var í dag ráðinn sveitarstjóri Húnavatnshrepps og mun hefja störf þann 15. ágúst næstkomandi. Alls sóttu sextán manns um starfið. „Ég hlakka mjög til að taka við starfi sveitarstjóra í Húnavatnshreppi og kynnast því ágæta fólki sem þar býr. Sveitarfélagið stendur traustum fótum og býr yfir ýmsum möguleikum,“ segir Einar Kristján og segist munu gera allt til að láta gott af sér leiða í þágu sveitarfélagsins og byggja upp enn betra samfélag til framtíðar. Einar Kristján er fæddur á Akranesi árið 1971. „Hann lauk sveinsprófi í bifvélavirkjun frá Iðnskólanum í Reykjavík 1995 og rekstrar- og viðskiptanámi frá Endurmenntun Háskóla Íslands 2008. Þá hefur hann undanfarin ár stundað nám í viðskiptafræði við Háskóla Íslands samhliða störfum sínum,“ segir í fréttatilkynningu. „Einar Kristján var deildarstjóri rekstrarsviðs Vátryggingafélags Íslands hf. 2003-2008 og rekstrarstjóri Hreinsibíla hf. 2008-2010. Hann var verkefnastjóri eignaumsjónar og gæðaeftirlits hjá Frumherja hf. 2010-2014. Einar Kristján hefur gegnt fjölmörgum trúnaðar- og félagsstörfum í gegnum tíðina. Hann sat m.a. í Íþrótta- og tómstundaráði Kópavogsbæjar 2002-2006 og var formaður skipulagsnefndar Kópavogsbæjar 2006-2009. Þá hefur hann m.a. setið í stjórn Frjálsíþróttasambands Íslands, Glímusambands Íslands og varastjórn Ungmennafélags Íslands. Einar Kristján var formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks 2006-2013. Hann hefur m.a. verið sæmdur silfurmerki Knattspyrnusambands Íslands, gullmerki Breiðabliks og gullmerki Ungmennafélags Íslands fyrir störf sín. Einar Kristján er kvæntur Liselottu Elísabetu Pétursdóttur, viðskiptafræðingi, og eiga þau tvö börn.“ Um 410 manns búa í Húnavatnshreppi og er skrifstofa hreppsins á Húnavöllum.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira