Kjötið reyndist vera kjöt í þetta sinn Þorbjörn Þórðarson skrifar 6. ágúst 2014 21:05
Matvælastofnun framkvæmir ekki reglubundnar athuganir á öllum vörum sem unnar eru úr kjöti til að sannreyna hvort merkingar séu réttar, heldur framkvæmir einstaka úttektir og skoðar verklag við framleiðsluferlið sjálft. Ekkert hrossakjöt hefur fundist í íslenskum kjötafurðum samkvæmt nýrri mælingu stofnunarinnar. Þá reyndist kjötið í þessum afurðum vera alvöru kjöt. Snemma árs 2013 lét Matvælastofnun rannsaka kjötinnihald 16 íslenskra matvara á markaði til að kanna hvort þær innihéldu hrossakjöt án þess að þess væri getið á umbúðum. Niðurstöður sýndu að ekki hafði neinu hrossakjöti verið blandað í vörurnar. Hins vegar kom í ljós að engin þessara vara uppfyllti kröfur um merkingar og reyndust tvær vörur ekki innihalda nautakjöt þrátt fyrir merkingar þar um. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að Nautabaka frá Gæðakokkum í Borgarnesi sem sögð var innihalda 30 prósent nautahakk í fyllingu, sem átti að vera helmingur af þyngd vörunnar, innihélt ekkert kjöt. Fyrirtækið Gæðakokkar hefur nú skipt um nafn og heitir Kræsingar ehf. Hverju geta neytendur treyst? Matvælastofnun hefur reglubundið eftirlit með matvælafyrirtækjum sem selja afurðir sem innihalda dýraprótein, þ.e. kjöt. En hversu reglulegt er þetta eftirlit? Geta neytendur treyst því að í til dæmis hamborgarakjötinu þsem þeir kaupa sé ekkert annað en nautakjöt? Lærdómur neytenda úr stóra kjötbökumálinu í fyrra er sá að það er full ástæða til að tortryggja merkingar matvæla hér á landi. Matvælastofnun fylgist með því hvort framleiðendur séu með verklag sem tryggi rétt innihald. „Við gerum þetta meðal annars með því að skoða hvort að merkingar séu í samræmi við uppskriftir. Í eftirliti þá tökum við gjarnan eina eða fleiri vörur og berum þetta saman,“ segir Sigurður Örn Hansson forstöðumaður matvælaöryggis- og neytendamála hjá Matvælastofnun (MAST). En þið gerið ekki reglubundnar athuganir á hverri og einni vöru? „Vörutegundir hjá matvælafyrirtækjum eru svo margar að það er ógerlegt að framkvæma 100% skoðun á því.“Héldu fræðslufundi Eftirfylgni Matvælastofnunar við stóra kjötbökumálið var að halda fræðslufundi með framleiðendum. Síðan var ráðist í sérstaka sýnatöku í júní síðastliðnum, þ.e kannað var í annað sinn hvort kjötið sem væri á boðstólnum í búðum væri ekki örugglega kjöt. „Og niðurstaðan úr því verkefni var að merkingarnar stóðust í öllum tilvikum, varðandi kjötinnihaldið,“ segir Sigurður Örn. Þá fannst blessunarlega ekkert hrossakjöt í þessari athugun heldur.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira