Dregur úr stuðningi við ríkisstjórnina Randver Kári Randversson skrifar 7. ágúst 2014 11:26 Stuðningur við ríkisstjórnina er 36,2% samkvæmt nýjustu skoðanakönnun MMR. Vísir/GVA
Stuðningur við ríkisstjórnina mælist 36,2% í nýjustu könnun MMR en mældist 38,0% í síðustu mælingu og 36,8,8% í lok maí s.l. Lítil breyting er á fylgi flokkanna frá síðustu könnun fyrirtækisins, sem gerð var í lok júní. Helsta breytingin er sú að fylgi Bjartrar framtíðar minnkar um 2,6% og fylgi Framsóknarflokks eykst um 2,3%. Fylgi annarra flokka breytist um innan við eitt prósentustig. MMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) á tímabilinu 28. til 31. júlí 2014. Á vef MMR kemur fram að fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 24,1%, borið saman við 25,0% í síðustu könnun. Fylgi Bjartrar framtíðar mældist nú 19,2%, borið saman við 21,8% í síðustu könnun. Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 17,0% borið saman við 16,5% í síðustu könnun. Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 11,8%, borið saman við 9,5% í síðustu könnun. Vinstri-græn mældust nú með 11,6% fylgi, borið saman við 11,4% í síðustu könnun og fylgi Pírata mældist nú 9,6%, borið saman við 8,3% í síðustu könnun. Fylgi annarra flokka mældist undir 2%. Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 80,5% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (5,3%), myndu skila auðu (5,7%), myndu ekki kjósa (2,0%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (6,5%). Í úrtakinu voru einstaklingar 18 ára og eldri úr hópi álitsgjafa MMR, valdir af handahófi. Alls svöruðu 937 einstaklingar könnuninni.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira