Gefa mat á Facebook Karl Ólafur Hallbjörnsson skrifar 31. júlí 2014 00:00 Kolbrún Sara Aðalsteinsdóttir gaf þurfandi fólki mat á Facebook í gær. Vísir/Samsett mynd
Meðlimir Facebook-hópsins „Gefins, allt gefins!" tóku sig saman í gær og morgun og gáfu mat til þeirra sem eru hjálpar þurfi. Hópurinn „Gefins, allt gefins!" var stofnaður fyrir rúmu ári síðan, og inniheldur tæplega sautján þúsund manns. Síðan er svæði fyrir fólk til að gefa hluti frá sér endurgjaldslaust. Margir gefa notuð húsgögn, föt og ýmisleg leikföng eða bækur. Allt að tíu manns birtu ljósmyndir af ónýttum matarbirgðum sem höfðu jafnvel legið í heilt ár í frystikistu. Fannst þeim hyggilegra að gefa hann þeim sem þurfa á matnum að halda. Margir svöruðu boðinu og þáðu matargjöf. Í kjölfarið var svo sérstakur hópur stofnaður með það í huga að fólk deili mat með hverju öðru. Hópurinn sá heitir einfaldlega Matargjafir.Hér má sjá innlegg Kolbrúnar Söru.Vísir/SkjáskotKolbrún Sara Aðalsteinsdóttir er ein þeirra sem gaf frá sér miklar matarbirgðir. „Ég veit hvernig það er að eiga ekki mat í lok mánaðarins, og sérstaklega núna þegar fólk er að borga skatt, þá eiga ekkert margir mikið eftir," segir Kolbrún. „Ég ákvað að kíkja hvað ég ætti til og hvort ég gæti hjálpað einhverjum." Aðspurð segist Kolbrún halda að matargjafir Mæðrastyrksnefndar nægi ekki til að halda uppi þeim sem þurfa hjálp. „Ég þekki marga sem þurfa að styðjast við hjálp frá Mæðrastyrksnefnd en eiga samt lítið sem ekkert." Kolbrún vill hvetja aðra til að gera slíkt hið sama. „Kíkið í eldhúsið ykkar. Það er rosalega oft sem maður á eitthvað sem maður er ekkert að fara að nota, hlutir sem maður kaupir sem maður á eftir að henda. Ég vil endilega hvetja fólk til að kíkja í eldhúsið sitt." Ef smellt er á tengilinn að ofan er hægt að sjá síðu hópsins, en sé notandi ekki meðlimur getur hann ómögulega séð innlegg hópsins þar eð hann er stilltur sem lokaður.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira