Einkaneyslan býr til hagvöxtinn Linda Blöndal skrifar 31. júlí 2014 20:00
Meiri kaupmáttur og meiri innkaupMeiri einkaneysla sést á aukinni kortaveltu Íslendinga, bílasölu og almennri smásölu eins og lesa má í spá Hagstofunnar sem gerð var í þessum mánuði og birt var í dag. Störfum fjölgaði í fyrra mikið á milli ára í fyrra eða jafn mikið og árið 2007 og er fjölgun starfa er spáð áfram. Laun hafa hækkað umfram verðlag og kaupmáttur aukist talsvert að undanförnu.Batnandi hagur ekki allraFjárhagsstaða heimila og fyrirtækja hefur haldið áfram að batna vegna endurskipulagninu skulda, hagvaxtar og hærra eignaverðs. Hluti heimila og fyrirtækja mun þó enn þurfa sérstök skuldaúrræði og hlutfall ráðstöfunartekna í húsnæðisgjöld verður ennþá hátt, segir í skýrslunni.Slæm tíðindi Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og varaformaður efnahags og viðskiptanefndar Alþingis segir slæmt ef einkaneysla drífi áfram landsframleiðsuna. Hann segir fjárfestingu enn mjög lága. Lækka eigi aftur fjármagnstekjuskatt og hvetja til sparnaðar en enn búi Íslendingar við að þeim er refsað fyrir sparnað, eins og Pétur nefndi í fréttum Stöðvar 2.Meiri fjárfestingar vegna ferðamanna og kísilvinnsluAukin neysla frá því í fyrra er um 4 prósent miðaði við spána. Fjárfesting jókst um sautján komma sex prósent miðað við sama tíma í fyrra og er nefnt í skýrslunni að þar komi til auknar fjárfestingar á fasteignamarkaði. Verð á fasteignum hefur hækkað mikið sum staðar. Í hverfum nærri miðbæ Reykjavíkur var fermetraverð í fjölbýli í fyrra allt að 20 prósent hærra en á árinu 2007. Meiri fjárfestingar í atvinnulífnu er rakið til ferðamannaþjónustu og einnig stóriðja, sér í lagi vegna orkutengdrar fjárfestingar í kísilvinnslu.Margs konar óvissa framundanÞað sem helst skapar þó óvissu í efnahagslifinu næstu árin er, að stóriðjuframkvæmdir verði minni en talið verði, launa- og gengisþróun en kjarasamningar verða lausir í vetur. Gengishöft og möguleg bólumyndun verði í efnahagslífinu innan fjármagnshafta.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Erlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik Innlent Fleiri fréttir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Sjá meira