Týndist í sólarhring og gaut ellefu hvolpum á meðan Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 20. júlí 2014 15:07
Labrador tíkin Salka kom eigendum sínum á Vatnsenda í Flóahreppi heldur betur á óvart þegar hún lét sig hverfa í sólarhring í vikunni og mætti síðan aftur heim nýbúin að gjóta ellefu hvolpum í bæli undir grenitré við bæinn. Ingvar Guðni Ingimundarsson á Vatnsenda er eigandi Sölku en hann er með vélsmiðju á bænum þar sem tíkin er með honum allan daginn. Ingvar Guðni og fjölskylda skruppu í sumarbústað í Borgarfjörðin í vikunni og fengu foreldra hans til að passa Sölku á meðan. En hvað gerðist þá ? „Svo um hádegisbilð á miðvikudaginn hverfur tíkin og okkur leið auðvitað ekki vel yfir því, við héltum að hún kæmi kannski bara en svo þegar hún lét ekki sjá sig þá fórum við að leita og leita, og seinast rétt áður en við fórum að sofa um kvöldið, þá fór ég að leita og gekk einmitt þar sem bælið hennar fannst svo daginn eftir, við fundum h hana sem sagt ekki,“ segir Þórunn Kristjánsdóttir, mamma Ingvars Guðna. Þegar Ingvar Guðni og fjölskylda komu hins vegar heim um hádegisbil á fimmtudaginn dróg til tíðinda. „Þá bara flautaði ég úti á hlaði á hana og þá kom hún eftir smástund hlaupandi og vísaði okkur svo á hvolpana undir grenitré þar sem hún var búin að gjóta þeim öllum,“ segir Ingvar og bætir því að þarna hafi orðið mikil gleðistund. „Já, þetta var ánægjulegt, maður átti kannski von á því að hún myndi alltaf skila sér en maður var ekki viss hvernig færi með hvolpana, þetta var gaman, ekki síst fyrir krakkana“. Það fer vel um hvolpana í þvottahúsinu á Vatnsenda og er Salka einstaklega góð mamma. „Þetta var yndislegur endir, virkilega gaman að sjá alla þessa litlu hvolpa alla lifandi“, segir Þórunn og bætir því við að Salka hafi nóga mjólk handa þeim enda troðjúgra, það sé reyndar einn hvolpur langminnstur en hún sé helst á því að hann ætli ekki að verða undir.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fleiri fréttir „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Sjá meira