Sýslumönnum fækkað úr 24 í níu Stefán Ó. Jónsson skrifar 23. júlí 2014 18:36 Hanna Birna Kristjánsdóttir, innaríkisráðherra. VISIR/STEFAN
Ný lög um umdæmaskipan sýslumanna taka gildi um næstu áramót. Embættin verða 9 í stað 24 áður og hefur innanríkisráðherra nú skipað nýja sýslumenn í embættin í kjölfar niðurstöðu sérstakrar valnefndar. Ný embætti sýslumanna munu taka til starfa um næstu áramót í samræmi við ný lög sem Alþingi samþykkti síðastliðið vor um breytingar á umdæmum sýslumanna og lögreglustjóra og aðskilnað embættanna. Samkvæmt hinum nýju lögum verður sýslumannsembættum fækkað úr 24 í níu. Lokið verður skipan í embætti í nýjum umdæmum lögreglustjóra á næstu dögum. Skipan í embætti sýslumanna verður sem hér segir:Sýslumaður á Suðurlandi: Anna Birna Þráinsdóttir.Sýslumaður í Vestmannaeyjum: Lára Huld Guðjónsdóttir.Sýslumaður á Austurlandi: Lárus Bjarnason.Sýslumaður á Norðurlandi eystra: Svavar Pálsson.Sýslumaður á Norðurlandi vestra: Bjarni G. Stefánsson.Sýslumaður á Vestfjörðum: Jónas Guðmundsson.Sýslumaður á Vesturlandi: Ólafur K. Ólafsson.Sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu: Þórólfur Halldórsson.Sýslumaður á Suðurnesjum: Ásdís Ármannsdóttir. Hanna Birna Kristjánsdóttir, segir í tilkynningu frá ráðuneytinu: „Það er afar ánægjulegt að svo öflugur hópur einstaklinga taki að sér þessi mikilvægu embætti sýslumanna í landinu. Sýslumannsembættin eru gamalgrónar og traustar stjórnsýslu- og þjónustustofnanir sem gegna mikilvægu hlutverki. Með sameiningu og fækkun embætta verða til stærri, öflugri og hagkvæmari rekstrareiningar sem eru betur í stakk búnar til að takast á við ný verkefni og efla þjónustu við almenning í landinu.“Nýjum sýslumönnum verður nú falið að undirbúa innra skipulag hinna nýju embætta, þjónustu þeirra og starfsemi að öðru leyti en ný umdæmaskipan tekur gildi um næstu áramót. Ráðherra ákveður, að höfðu samráði við viðkomandi sýslumann, sveitarstjórnir, landshlutasamtök sveitarfélaga og fleiri hvar aðalskrifstofur sýslumanna skulu vera og hvar aðrar sýsluskrifstofur verða starfræktar og hvaða þjónustu þar skuli veita
Mest lesið Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Erlent Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Innlent Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Innlent Kostar allt að 210 þúsund krónum að vera í golfklúbbi Innlent „Ég var ekki að deyja, en ég þurfti hjálp“ Innlent Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Innlent Grimmdarlegu ofbeldi lýst í ákærunni Innlent „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Innlent Eldhaf í Glasgow Erlent Fleiri fréttir Stóraukin þátttaka kvenna í skimun fyrir krabbameini Ný greiningaraðferð á endómetríósu í sjónmáli „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Ekki í forgangi hjá Isavia að smíða bílastæðahús Oddvitinn lætur gott heita í Mosfellsbæ Evrópuhiti, Bjarni Ben og bílastæði Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Þau verða í efstu tíu sætunum á lista Pírata Þriðjungur andvígur atkvæðagreiðslunni Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Hefur setið tvo af þremur borgarstjórnarfundum frá því að hann skipti um lið Kostar allt að 210 þúsund krónum að vera í golfklúbbi Bein útsending: ESB-ballið byrjar á Alþingi Niðurrif ónýtra húsa í Grindavík hafið Landbúnaðarstefna ESB henti íslenskum landbúnaði illa Enginn sem hefur stjórn á því hvar olíuverð endar Bjóða upp á tjaldsvæði inni Tekist á um þjóðaratkvæði á þingi í dag og olíuverð í hæstu hæðum Ætlar ekki að taka úrslitunum sem höfnun Bein útsending: Bjarni og fleiri ræða almannatryggingafrumvarpið Gæsluvarðhald meints barnaníðings framlengt „Ég var ekki að deyja, en ég þurfti hjálp“ Stefnir í norðanhríð í vikunni Bíll hafnaði í Kópavogstjörn Grimmdarlegu ofbeldi lýst í ákærunni Vilja launað leyfi fyrir þolendur ofbeldis og vernd gegn uppsögn Faldi sig inni í fataskáp þegar lögregluna bar að garði Gildandi kjarasamningar ávísun á áframhaldandi verðbólgu Loks komnar af átakasvæðinu: „Átján tímar af þroti“ Sjá meira