Kynna hjólaskauta við Hörpuna Samúel Karl Ólason skrifar 24. júlí 2014 15:47 Meðlimir Roller derby á íslandi. „
Fólk má koma á reiðhjóli, hlaupahjóli, línuskautum, hjólastól eða hverju sem er. Ef vilji er til að prófa bæði línuskauta og hjólaskauta, þá verðum við með eitthvað pörum bæði í Nauthólsvík og við Hörpuna,“ segir Guðný Jónsdóttir, stofnandi Roller derby á Íslandi. Reykjavíkurborg og Roller Derby Ísland eru í samstarfi ásamt hljómsveitinni White Signal um að halda þrjá hjólaskautaviðburði í sumar. Næstkomandi laugardag verður skautað sjávarsíðuna frá Nauthólsvík og endað fyrir framan Hörpuna þar sem White Signal mun halda uppi fjörinu. „Þeir sem eru tilbúnir til að skauta svolitla vegalengd þá verða líklega um tveir kílómetrar frá Nauthólsvíkinni í Hörpuna. Þeir sem eru kannski með yngri börn sem treysta sér ekki til að skauta svona langa leið byrjum við klukkan hálf fimm fyrir utan Hörpuna. Þar verður hljómsveit að spila og við lánum skauta til bæði barna og fullorðinna,“ segir Guðný. „Samkvæmt veðurspá á ekki að rigna, þannig að þetta á allt að ganga upp.“ Roller Derby lið Íslands hefur æft stíft í um ár og hefur nú þegar farið í keppnisferð til Finnlands og á von á tveimur erlendum liðum í heimsókn í vetur. Þetta er annar viðburðurinn í sumar af þremur og sá þriðji verður hjólaskautadiskó í bílakjallara. „Við gerðum það í fyrra og það heppnaðist mjög vel. Því ákváðum við að stækka þetta aðeins í sumar.“ „Það sem við erum líka að gera er að vekja athygli á hjólaskautaíþróttinni, Roller derby. Nýliðanámskeið munu byrja í haust og við viljum vera sjáanleg til að fá sem flesta í haust.“
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira