Ferðamenn í sjálfheldu Gissur Sigurðsson skrifar 28. júlí 2014 07:38 Björgunarsveitarmenn hafa haft í nógu að snúast við að koma ferðamönnum til bjargar.
Erlendur ferðamaður lenti í sjálfheldu á lítilli syllu í Ólafsfjarðarmúla, norðan við gangamunnann, í gærkvöldi og kallaði samferðamaður hans eftir aðstoð. Björgunarsveitarmenn frá Dalvík fóru til aðsotðar, en þegar til kom höfðu þeir ekki búnað til að síga niður til mannsins og var þá óskað eftir sérhæfðum fjallabjörgunarmönnum frá Akureyri, sem mættu á svæðið með mikinn búnað og náðu manninum. Hann var ómeiddur, en var orðinn nokkuð kaldur. Þá var björgunarsveit á Vopnafirði kölluð út í gærkvöldi til að aðstoða mann, sem sat í föstum bíl sínum úti í miðri Selá. Hann reyndist hafa ekið rangt í vaðið á móts við Mælifell þannig að vatn flæddi inn í bílinn, sem drap á sér. Ekkert amaði að ökumanni og farþega hans þegar björgunarmenn komu á vettvang og dróu bílinn upp. Og enn einn ferðamaðurinn í sjálfheldu var svo göngukona í hlíðum Ingólfsfjalls í gærkvöldi, en hún hringdi eftir aðstoð. Það tók björgunarsveitarmenn nokkurn tíma að finna út hvar í fjallinu hún væri, því hún átti í erfiðleikum með að átta sig á staðháttum. Loks gaf bíll konunnar, sem stóð við fjallsræturnar, vísbendingu um hvar hún gæti verið og fannst hún heil á húfi.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira