Utanríkisráðherra fundar með Porosjenko Randver Kári Randversson skrifar 15. júlí 2014 20:58 Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra er nú í tveggja daga heimsókn til Úkraínu. Vísir/Kristinn
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra átti fund í Kænugarði í kvöld með Petro Porosjenko, forseta Úkraínu og Pavlo Klimkin utanríkisráðherra landsins. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Gunnar Bragi er nú í tveggja daga heimsókn í Úkraínu ásamt Edgars Rinkēvičs, utanríkisráðherra Lettlands. Auk þeirra tveggja tók Radoslaw Sikorski, utanríkisráðherra Póllands, þátt í fundinum með forsetanum. „Það er afar mikilvægt að Úkraína fái þrifist sem opið lýðræðisríki sem búi í sátt og samlyndi við öll grannríki sín. Á fundinum ræddum við hvernig lægja megi öldurnar í austurhluta landsins og tryggja frið og öryggi fyrir alla íbúa landsins“ segir Gunnar Bragi. Gunnar Bragi segir áríðandi að komið verði á vopnahléi og að deiluaðilar setjist að samningaborði hið fyrsta. Aðskilnaðarsinnar í austurhluta landsins hafa ekki enn ljáð máls á því, sem sé mikið áhyggjuefni. Hann hvetur rússnesk stjórnvöld til að hlutast til um að aðskilnaðarsinnar leggi niður vopn og taki þátt í viðræðum til að miðla málum. Þá ítrekar utanríkisráðherra að innlimun Rússlands á Krímskaga brjóti í bága við alþjóðalög. „Það varðar hagsmuni Íslands miklu að alþjóðalög séu ávallt virt. Þess vegna skipta atburðir liðinna mánaða í Úkraínu máli fyrir okkur. Með heimsókn minni núna vil ég undirstrika það að rödd Íslands heyrist til varnar alþjóðalögum og reglu“ segir Gunnar Bragi. Á fundinum ræddi Gunnar Bragi einnig vilja Íslands til að styðja við bakið á Úkraínu í orkumálum.
Mest lesið Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Innlent Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Innlent Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Innlent Fleiri fréttir Leigubílstjóri stunginn af farþega Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ „One love“ til allra í kommentakerfinu Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Bílvelta austan við Hvalnes Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Enn enginn grunaður um spellvirkin við Grafarvogskirkju Ekki falsaðir peningar heldur gervipeningar Sjá meira