Innlent

Skipið laust af strandstað

Randver Kári Randversson skrifar
Kristina EA siglir til hafnar í Grundarfirði.
Kristina EA siglir til hafnar í Grundarfirði. Vísir/Tómas
Um 100 metra langt skip er strandað fyrir utan Grundarfjörð og hefur Björgunarsveitin Klakkur verið kölluð út vegna strandsins. Enginn um borð er talinn í hættu.

Uppfært kl. 20:20:

Samkvæmt heimildum Vísis er hér um að ræða skuttogarann Kristínu EA 410 og er skipið strandað við Melrakkaey. Björgunarsveitir í Grundarfirði og Snæfellsbæ hafa verið kallaðar út og hefur þyrla Landhelgisgæslunnar verið send á vettvang. Leki er kominn að skipinu og verið að setja dælur um borð.

Skemmitferðaskipið Dolphin var fyrst á vettvang, en það er nú að fara af strandstað þar sem mikill straumur er á svæðinu. 

Uppfært kl. 20:45:

Skipið er nú laust af strandstað og siglir nú til hafnar í  Grundarfirði með tvær dælur um borð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×