Fótbolti

Litli bróðir Touré-bræðranna látinn

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Kolo Touré og Yaya Touré.
Kolo Touré og Yaya Touré. vísir/getty
Ibrahim Touré, yngri bróðir YayaTouré og KoloTouré, landsliðsmanna Fílabeinsstrandarinnar í fótbolta, féll frá í dag 28 ára að aldri eftir stutta baráttu við krabbamein.

Knattspyrnusamband Fílabeinsstrandarinnar birtir yfirlýsingu vegna málsins á heimasíðu sinni í dag þar sem samúðarkveðjum er skilað til bræðranna og fjölskyldu þeirra.

Yaya og Kolo eru þessa stundina staddir með Fílabeinsströndinni á HM í Brasilíu þar sem liðið tapaði, 2-1, fyrir Kólumbíu í gær.

Ibrahim var knattspyrnumaður eins og bræður hans. Hann lék með Metalurg Donetsk og Nice í Frakklandi á árunum 2003-2007. Hann var nú síðast á mála hjá Al-Safa'SC í Líbanon.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×