Fótbolti

Skoti fagnaði sigurmarki Suarez

Flottur með skoska fánann og hárkolluna.
Flottur með skoska fánann og hárkolluna.
Skotinn Mark McConvile er orðinn heimsfrægur eftir að hann sást fagna sigurmarki Suarez í gær gegn Englendingum á HM.

Þessi ágæti maður er frá Glasgow og er bifvélavirki hjá Mercedes-liðinu í Formúlu 1. Ekki er vitað nákvæmlega hver tilgangur hans var með því að mæta í skosku litunum annar en að halda ekki með Englandi.

Heimildarmenn þykjast hafa séð hann líka á leik Ítalíu og Englands þar sem hann á að hafa fagnað mörkum Ítala með stæl.

Margir stuðningsmenn enska landsliðsins eru brjálaðir út í McConvile og hafa einhverjir þeirra lýst því yfir á Twitter að þeir muni styðja andstæðinga Skota á stórmóti fari svo að Skotum takist einhvern tímann að komast á stórmót aftur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×