Gyrða Spánverjar sig í brók? Arnar Björnsson skrifar 23. júní 2014 15:15 Tim Cahill verður í banni í leiknum. Vísir/Getty
Heimsmeistarar Spánverja mæta Áströlum í lokaleik sínum á Heimsmeistaramótinu klukkan 16. Spánverjar hafa valdið miklum vonbrigðum hingað til á mótinu. Luis Felipe Scolari, þjálfari Brasilíu, reiknaði með því að mæta Spánverjum síðar í keppninni. Lét Scolari fyrrverandi landsliðsmann, Roque Júnior, fylgjast með öllum leikjum Spánverja sl. þrjú ár og rýna í veikleika liðsins. Var sú vinna því unnin til einskis. Spænsku leikmennirnir hafa verið harðlega gagnrýndir og enginn meira en Diego Costa, sem fæddur er í Brasilíu, en kaus að spila með spænska landsliðinu. Costa hefur enn ekki átt markskot á þeim 126 mínútum sem hann hefur spilað. Þjálfarinn Vicente Del Bosque er borubrattur og lætur gagnrýnina sem vind um eyru þjóta. Spánverjar hafa átt flestar sendingar alla liða í keppninni, 1145 talsins en sú tölfræði hefur litlum árangri skilað. Spánverjar hafa aðeins skorað eitt mark en fengið á sig sjö í leikjunum tveimur. Áströlum dugar jafntefli til að verða í þriðja sæti því markatala liðsins er betri en hjá Spánverjum. Tim Cahill er í leikbanni en hann hefur skorað fimm af 11 mörkum Ástrala í úrslitakeppni HM, þar af tvö af þremur mörkum þeirra í Brasilíu. Þjálfari Spánverja gerir sjö breytingar frá því í leiknum gegn Chile. Aðeins Sergio Ramos, Jordi Alba, Xabi Alonso og Andrés Iniesta halda sætum sínum. Andrés Iniesta spilar 100. landsleikinn sinn á ferlinum og heldur sæti sínu í liðinu. Leikur Spánverja og Ástrala verður sýndur beint á Sport 2 en flautað verður til leiks klukkan 16.
HM 2014 í Brasilíu Tengdar fréttir Villa kvaddi með marki og tárum í sigri Spánar Markahæsti leikmaður spænska landsliðsins leggur nú landsliðsskóna á hilluna. 23. júní 2014 13:00 Mest lesið Aníta Ýr slær í gegn í Yale háskólanum Fótbolti Spilað ofan í úrslitaleik kvenna: „Ha?! Ég þurfti að athuga þetta tvisvar“ Íslenski boltinn Sjáðu mörk Haalands, asnaskap Mbappé og sjálfsmörkin í Þýskalandi Fótbolti Óttast að Róbert Frosti sé alvarlega meiddur Fótbolti Mikael beittur kynþáttaníði Fótbolti Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Enski boltinn Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Enski boltinn Með innanbúðarupplýsingar um gífurleg áhrif Eiðs Smára Íslenski boltinn Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Íslenski boltinn Fleiri fréttir Með innanbúðarupplýsingar um gífurleg áhrif Eiðs Smára Stórbrotin Ída Marín með þrennu í sigri Hammarby Þróttarar komnir yfir í einvígi sínu gegn Njarðvík Liverpool - Atletico Madrid | Lærisveinar Simone mæta í Bítlaborgina Napoli - Arsenal | Englandsmeistararnir halda til Ítalíu Jesus á skotskónum í stórsigri Börsunga Óttast að Róbert Frosti sé alvarlega meiddur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Mikael beittur kynþáttaníði Frysta egg frítt fyrir landsliðskonur Söguleg stund fyrir Viking í kvöld Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn „Enginn með heljarinnar tak á Heimi Guðjóns“ Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Spilað ofan í úrslitaleik kvenna: „Ha?! Ég þurfti að athuga þetta tvisvar“ Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Messi að kaupa hundrað prósent hlut í spænsku félagi Sjáðu mörk Haalands, asnaskap Mbappé og sjálfsmörkin í Þýskalandi Aníta Ýr slær í gegn í Yale háskólanum Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Haaland sýndi enga miskunn og sótti stigin þrjú í Portúgal Súr endir á Meistaradeildarkvöldi Hákonar og Lille Gjafir Inter urðu þeim að falli gegn Real Madrid Fyrsti sigur Aston Villa á tímabilinu kom í Meistaradeildinni Stór varða í langþráðri endurkomu Patriks: „Eitt skref í einu“ Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Hjartaaðgerð McTominay gekk vel Mourinho fékk úðara að gjöf Sjá meira
Villa kvaddi með marki og tárum í sigri Spánar Markahæsti leikmaður spænska landsliðsins leggur nú landsliðsskóna á hilluna. 23. júní 2014 13:00