Sjö milljónir falla á Akureyrarbæ vegna ólöglegra uppsagna Randver Kári Randversson skrifar 26. júní 2014 09:32 Slökkviliðsmenn á Akureyri slökkva eld við Aðalstræti árið 2009. Vísir/Auðunn
Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt Akureyrarbæ brotlegan við uppsögn tveggja slökkviliðsmanna. Landssamband slökkviliðsmanna og tveir einstaklingar hjá slökkviliðinu fóru í mál við bæinn og er niðurstaða héraðsdóms að uppsagnirnar hafi verið ólöglegar. Í frétt Akureyri Vikublaðs um málið kemur fram að öðrum slökkviliðsmanninum fyrrverandi eru dæmdar bætur upp á þrjár milljónir króna. Hinn fær bætur sem nema tveimur milljónum króna. Málskostnaður er um tvær milljónir og fellur á bæinn. Með dóminum falla því sjö milljónir króna á útsvarsgreiðendur. Áður var búið að greiða háar fjárhæðir í sálfræðikostnað, skýrslur og úttektir vegna margra ára samskiptavanda innan liðsins sem endaði með því að fyrrverandi slökkviliðsstjóri hætti störfum á síðasta ári. „Ég fagna því að dómurinn hafi staðfest það við við vissum, að þessi uppsögn væri ólögleg," segir Ingimar Eydal, fyrrum varaslökkviliðsstjóri í samtali við Akureyri Vikublað. Annar slökkviliðsmannanna sem nú hafa endurheimt æru sína eins og hann orðar það. Anton Berg Carassco, aðaltrúnaðarmaður Slökkviliðsins á Akureyri, segir í samtali við Akureyri Vikublað að hlutir hafi batnað mjög innan liðsins eftir að fyrrverandi slökkviliðsstjóri hætti og niðurstaðan sé uppreisn æru fyrir stærstan hluta liðsins. „Þeir embættismenn bæjarins sem áttu að höndla þessi mál, bæjarlögmaður, starfsmannastjóri og bæjartæknifræðingur brugðust ekki síður en hann. Þegar hlutir eru komnir á hvolf var ekki brugðist við með réttum hætti.“ „Nú þegar ný bæjarstjórn hefur tekið við held ég að tími sé kominn til að staldra við og skoða hæfi sumra embættismanna hér í bæ. Bærinn vinnur samkvæmt dóminum ekki eftir reglum stjórnsýslu og öðrum lögum almennt, vandamálin snúa að ýmist ákvarðanafælni eða samtryggingu embættismanna,“ segir Anton Berg, aðaltrúnaðarmaður slökkviliðsins.
Mest lesið Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Innlent Segist saklaus Innlent Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Innlent Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu í átökum við lögreglu Innlent Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Erlent Axel segist fórnarlamb subbulegra og fullkomlega tilhæfulausra ærumeiðinga Innlent Kannast ekki við að aðgengi að bílastæðum sé skert Innlent Íslendingar skipi sér í hóp með öfgaríkjum Innlent Kristinn ekki bænheyrður Innlent Bærinn vilji taka hluta Smáralindar á leigu fyrir 1,5 milljarða Innlent Fleiri fréttir Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Áætla að 188 frelsissviptir útlendingar hefðu verið vistaðir í nýja úrræðinu Sigríður Ingibjörg ráðinn nýr framkvæmdastjóri BSRB Á annan tug ferðalanga fastir á Holtavörðuheiði Íslendingar skipi sér í hóp með öfgaríkjum Umdeild málsókn, sviptingar í fjölmiðlum og verðhækkanir Þó nokkur snjóflóð fallið og loka Flateyrarvegi í kvöld Fjögurra vikna gæsluvarðhald eftir hópárás Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Sýkna Landsbankann af kröfum Quang Le Kristinn ekki bænheyrður Landsréttur tók ekki heldur mark á lygilegri frásögn Fimm ár fyrir stangir fullar af amfetamíni Mátti kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Umsókn Miðflokksins í klúbb evrópska íhaldsmanna ekki svarað Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu í átökum við lögreglu Samtal hafið um Ísafjarðarflug Ferðamenn valdi fleiri slysum en ölvaðir eða ungir ökumenn Miðflokkur kynnir sex efstu í Garðabæ Rétt að leita svara hjá Alþjóðadómstólnum og óttast ekki afleiðingar Norðanhríð fyrir vestan og Ísland í máli gegn Ísrael Þau eru á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi Sex snjóflóð fallin og veginum lokað Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Ísland tekur þátt í máli gegn Ísrael Lyfin stundum of dýr en ekki hægt að stökkva á ódýrasta kostinn Meðalbiðtími fimmfalt lengri en viðmið landlæknis Ný lög séu eitt af mörgum skrefum sem þurfi að taka Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Óvissustig í Súðavíkurhlíð Sjá meira