Lögreglan heldur áfram að skrifa um gullfiskinn Nemó Kjartan Atli Kjartansson skrifar 28. júní 2014 10:39 Frá leitinni á fimmtudaginn. Vísir/Arnþór
Blaðra sem fannst eftir umtalsverða leit Landhelgisgæslunnar í sjónum úti við Álftanes, var í eigu þriggja ára stúlku. Þetta kemur fram á Facebook-vef Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Á fimmtudaginn voru lögregla, slökkvilið, sjúkraflutningamenn og Landhelgisgæslan kölluð út á Álftanes eftir að þeim var tilkynnt að svifvængur (e. Paraglider) hefði farið í sjóinn. Eftir umtalsverða leit kom í ljós að þetta voru tvær helíumblöðrur með sólgleraugu bundin í þau sem fóru þarna í sjóinn. Á Facebook-vef Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var fjallað um málið og sagt frá því að vindurinn hafi feykt blöðurunum út á haf. Aðeins tókst að bjarga annarri blöðrunni, sem var af tegundinni Hello Kitty, en blaðra með fiskinum fræga Nemó fór aftur í sjóinn. „Það má því með sanni segja að þetta hafi verið ein umfangsmesta leit sem gerð hefur verið af þessum sögufræga gullfiski og það sem meira er, Nemó er enn ófundinn,“ sagði á vef lögreglunnar.Blaðran í eigu þriggja ára stúlku Facebook-færslan á fimmtudaginn vakti mikla athygli. Lögreglan hefur nú upplýst um eiganda blöðrunnar og er það þriggja ára stúlka. Stúlkan sendi lögreglunni einlægt afsökunarbréf og mætti daginn eftir í lögreglustöðina í Hafnarfirði, ásamt móður sinni, með blómvönd. Um þetta var fjallað á Facebookvef lögreglunnar: „Eigandi blaðranna var þriggja ára stúlka af Álftanesi. Hafði hún fengið Hello Kitty blöðruna á 17. júní sem hafði lifað góðu lífi fram á fimmtudag. Nemó blaðran hafði verið hengd á leiði systur hennar þennan sama dag. Í lok dagsins fannst fjölskyldunni tilvalið að sameina blöðrurnar og voru sólgleraugu þeirrar stuttu notuð til að halda þeim niðri.“Vonandi er Nemó búinn að finna pabba sinn „Það var svo á þessum örlagaríka fimmtudegi að svaladyrnar höfðu verið opnar og Kitty og Nemó stungu af og tóku flugið inn í sólarlagið. Fjölskyldan á Álftanesi fylgdist svo með björgunarliði streyma að úr öllum áttum en datt ekki til hugar að umstangið væri vegna strokuhjúanna. Ekki fyrr en móðirin sá myndina sem birt var hér á síðunni,“ segir ennfremur um málið í Facebook-færslunni. Þar kemur einnig fram að lögreglan telji rannsókn málsins lokið: „Lögregla lítur því hér með á að rannsókn málsins sé endanlega lokið. Hello Kitty er komin til síns heima og Nemó er vonandi loksins búinn að finna pabba sinn.“ Post by Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu.
Mest lesið Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Innlent „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Innlent Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ Innlent Inga sendir boltann á sveitarfélögin Innlent „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Innlent „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Erlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Fleiri fréttir Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Sjá meira