Mál barns sem sækja þarf tvo leikskóla: "Að dæma forsjá leysir engan ágreining" Hrund Þórsdóttir skrifar 28. mars 2014 20:00 Jónas Jóhannsson, hæstaréttarlögmaður, segir dóminn rangan og efast um að hagsmunir barnsins hafi verið hafðir að leiðarljósi.
Í Fréttatímanum er fjallað um mál fimm ára barns sem skal dvelja viku í senn hjá hvoru foreldra sinna, þar til grunnskólanám hefst, samkvæmt dómi héraðsdóms Vesturlands. Faðirinn býr á höfuðborgarsvæðinu en móðirin á landsbyggðinni svo barnið þarf að sækja tvo leikskóla. Jónas Jóhannsson, hæstaréttarlögmaður, er lögfræðingur föðurins. Hann telur dóminn rangan og vafasamt að hann henti hagsmunum barnsins. Með breytingu á barnalögum á síðasta ári var dómurum heimilað að lögfesta sameiginlega forsjá. „Ég tel að það sé aldrei góð niðurstaða fyrir barnið. Að dæma forsjá getur aldrei verið rétt og það leysir engan ágreining,“ segir Jónas. „En ef það á að dæma sameiginlega forsjá gegn vilja annars eða beggja foreldra held ég að það sé algjörlega nauðsynleg forsenda að foreldrarnir búi nánast í sama skólahverfi þannig að barnið sé eins lítið togað á milli heimila, skóla, tómstunda og vina og hægt er.“ Sem dómari við Héraðsdóm Reykjaness þróaði Jónas svokallaða Hafnarfjarðarleið, sáttameðferð sem þótti takast vel og kveðst hann hafa náð sátt í yfir 90% forsjármála. Fyrir nokkrum árum sagði hann að yrði fyrrnefnd breyting á barnalögum að veruleika, yrði það réttarfarsslys og hann stendur við þau orð sín. „Já, ég held að ef það næst ekki að sætta foreldra þegar þeir deila um forsjá þá sé ekkert annað skynsamlegt í stöðunni en að dæma öðru þeirra forsjána,“ segir hann. Margrét Birna Þórarinsdóttir, sálfræðingur sem sérhæfir sig í málefnum barna, kveðst ekki þekkja umræddan dóm en tekur fram að börn þurfi öryggi í umhverfi sínu. Hún segir erfitt að meta hvort brotin sé sú meginregla að hafa hagsmuni barnsins að leiðarljósi. „En auðvitað er aukin áhætta, ef barnið þarf að fara á milli leikskóla, á að það sé ekki í þeirri rútínu sem það þarf að vera í og þetta er auðvitað sérstaklega mikilvægt með yngri börn,“ segir Margrét. Hún segir breytingar sem þessar þó mögulega geta stuðlað að sátt. „Og meiri sátt ríki til dæmis á milli foreldra en áður var. Það getur líka skapað ákveðinn stöðugleika og það þarf bara að skoða hvert mál fyrir sig,“ segir Margrét.
Mest lesið Barn strauk af leikskóla í Hafnarfirði Innlent Fimmtán ára stúlka drap tvo fyrir Foxtrot-gengið Erlent Verslun opnar á varnarsvæðinu en viðveran stendur í stað Innlent Alvarleg mistök við vistun barna í Reykjanesbæ Innlent Ætla ekki að reka legurými í Klíníkinni Innlent Rasískur reiðilestur Trump: Lýsti Sómölum sem „heimsku“ og þjófóttu fólki Erlent Heuermann sagður ætla að játa Erlent Kastaðist marga metra eftir að ekið var á hann Innlent Deila um hjartastopp endaði með tugmilljóna bótum Innlent Fékk dánaraðstoð í gær eftir harða baráttu við föður sinn Erlent Fleiri fréttir Ráðherra fari með rangt mál Rýmka bílastæðareglur en höfnuðu tillögu sem gengur lengra Deila um hjartastopp endaði með tugmilljóna bótum Ekki gert ráð fyrir því að eini sýslumaðurinn hafi aðsetur á höfuðborgarsvæðinu Alvarleg mistök við vistun barna í Reykjanesbæ Tekur undir gagnrýni á umdeildan fyrirlestur eigin stofnunar Bein útsending: Árangur í krabbameinsmeðferð – hvað getum við bætt? Meint kynferðisbrotamál rannsakað í tvígang en fellt niður Röskva bar sigur úr býtum Hokin af reynslu og vill stórt egg fyrir strákinn Barn strauk af leikskóla í Hafnarfirði Norðurevrópskir bandamenn funda á Íslandi á næsta ári Verslun opnar á varnarsvæðinu en viðveran stendur í stað Ætla ekki að reka legurými í Klíníkinni Árnesingur og Rangæingur grafa fyrir Hvammsvirkjun „Sem betur fer er okkar maður ekki illa meiddur“ Kastaðist marga metra eftir að ekið var á hann Snör handtök skiptu sköpum á Höfðatorgi Sjö vilja stýra Sjúkrahúsinu á Akureyri Árekstur í Borgarfirði 2025: Hálka ein meginorsaka banaslyss Fækka stöðugildum hjá ríkinu um eitt prósent Bein útsending: Daði Már kynnir fjármálaáætlunina Forseti Slóveníu mætir á afmælisdegi Vigdísar Líf leiðir Sjálfstæðisflokk áfram á Akranesi Stúlkan er fundin Opna nýja möguleika í að binda kolefni með aðferð Carbfix Neita að afhenda dóma lögreglumanna Varð fyrir „áfalli“ að sjá uppsagnarbréf Málþing um konur sem lifa við langvinn veikindi Telja að bílastæðum fækki eftir að þau voru færð úr uppdráttum Sjá meira