„Þá fæ ég bara símtal um að bílnum hafi verið stolið um nóttina“ Randver Kári Randversson skrifar 29. júlí 2014 13:04 Halldór Geir Halldórsson og Volvo-inn sem stolið var á fimmtudagskvöld. Myndir/úr einkasafni „
Ég var að láta setja krók á Volvo-inn minn, hjá Víkurvögnum. Bíllinn er klár á fimmtudagskvöldið og þeir setja hann fyrir utan og ætla svo að hringja í mig á föstudeginum og segja mér að hann sé tilbúinn. Þá fæ ég bara símtal um að bílnum hafi verið stolið um nóttina,“ segir Halldór Geir Halldórsson , sem varð fyrir því óláni að bíl hans var stolið síðastliðið fimmtudagskvöld. Um er að ræða svartan Volvo af gerðinni S80, en Halldór segir ekki marga slíka bíla vera í umferð í Reykjavík. Bíllinn er enn ófundinn, og er Halldór farinn að óttast að erfitt geti reynst að endurheimta hann. Hann segir að þarna hafi mjög líklega verið vanir menn að verki. Þeir hafi notað plasthanska og því hafi engin fingraför fundist á vettvangi. „Spurningin er hvort að þetta séu ekki mjög líklega einhver erlend glæpagengi sem eru að reyna að senda bílinn út. Maður veit ekki hvernig þeir ætla að koma þessu í verð, ekki selja þeir hann hér eða gera nokkurn skapaðan hlut við hann á Íslandi,“ segir Halldór. Hann segist hafa látið setja krókinn á bílinn til að geta dregið kerru fyrir vélsleða sem hann keypti sér nýlega. Hann muni því lítið geta notað sleðann á meðan bíllinn finnst ekki. Málið er nú til rannsóknar hjá lögreglu og hefur lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýst eftir bílnum á Facebook-síðu sinni. Halldór hvetur alla sem vita eitthvað um málið eða kannast við bílinn að lögregluna á höfuðborgarsvæðinu vita. Post by Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira