Missti heimili sitt í eldsvoða á Patreksfirði Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 29. júlí 2014 12:03 "Ég vildi fara inn í húsið til að bjarga því sem bjarga gæti en ég mátti það ekki.“ vísir/brjánn „
Ég get ekki lýst tilfinningum mínum í orðum. Þetta er virkilega erfitt. En samt sem áður er ég betri í dag en í gær.“ Þetta segir Rafal Zoclonski, en betur fór en á horfðist þegar eldur varð laus í íbúðarhúsi hans á Patreksfirði í gærkvöld. Kona hans og barn náðu að forða sér út eftir að eldurinn kviknaði og sakaði þau ekki. Slökkviliðið fékk tilkynningu um eldinn á níunda tímanum í gærkvöldi. Um er ræða tveggja hæða forskalað timburhús en eldurinn kom upp á jarðhæð. Rafal var í vinnunni þegar honum var tilkynnt símleiðis að heimili hans stæði í ljósum logum. „Ég fór rakleiðis heim og sá þar húsið mitt brenna. Ég vildi fara inn í húsið til að bjarga því sem bjarga gæti en ég mátti það ekki. Konan mín var í áfalli en börnin voru nokkuð hress,“ segir Rafal. Húsið er óíbúðarhæft og er neðri hæð hússins gjörónýt. Föt allra fjölskyldumeðlima brunnu inni, en segir Rafal allar þeirra verðmætustu eigur hafa verið á efri hæð hússins og því er hann þakklátur. „Öll fötin okkar eru ónýt, en það er ekki það sem skiptir mestu máli. Verra þykir mér að rúm barnanna hafi eyðilagst og allt sem þau áttu inni í herbergjunum sínum.“ Rafal segir þetta erfiða lífsreynslu sem þurfi þó að yfirstíga. Vinur Rafals mun veita fjölskyldunni húsaskjól fram í ágústmánuð, og leitar fjölskyldan nú að nýrri íbúð. „Ég er ekki viss um að við getum bjargað íbúðinni. Lyktin er rosalega sterk og hæðin ónýt. En við þurfum að bíða eftir tryggingafulltrúa og sjáum hvernig fer.“
Tengdar fréttir Kona og barn flúðu þegar reykskynjari fór í gang Engan sakaði þegar eldur varð laus í íbúðarhúsi á Patreksfirði á níunda tímanum í kvöld. 28. júlí 2014 20:54 Mest lesið Bein útsending frá Sundahöfn: Hvað verður um áhöfn Bandero? Innlent Alelda bíll í Reykjanesbæ Innlent Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Innlent Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Erlent Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Innlent Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Innlent „Þá bara krassa lungun“ Innlent Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Innlent Bandero hafi beitt hættulegum aðferðum: „Þverskallaðist við að fylgja og hlýða fyrirmælum“ Innlent Fleiri fréttir Paul Watson afar ánægður með handtökuna Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild eftir árekstur Leita vitna að líkamsárás á Kótelettunni Búast við fjölmennasta Innipúka til þessa Aldrei liðið að öryggi sjómanna sé ógnað Alelda bíll í Reykjanesbæ Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Bandero hafi beitt hættulegum aðferðum: „Þverskallaðist við að fylgja og hlýða fyrirmælum“ Sérsveitaraðgerðir á hvalaslóð og Verslunarmannahelgin að ganga í garð Samtökin hafi bjargað lífi allt að þrjátíu hvala Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Bein útsending frá Sundahöfn: Hvað verður um áhöfn Bandero? Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Leggja áherslu á mannúðarlegar aðgerðir vegna minkanna Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Sjá meira
Kona og barn flúðu þegar reykskynjari fór í gang Engan sakaði þegar eldur varð laus í íbúðarhúsi á Patreksfirði á níunda tímanum í kvöld. 28. júlí 2014 20:54
Bandero hafi beitt hættulegum aðferðum: „Þverskallaðist við að fylgja og hlýða fyrirmælum“ Innlent
Bandero hafi beitt hættulegum aðferðum: „Þverskallaðist við að fylgja og hlýða fyrirmælum“ Innlent