Aukið álag á lögreglumenn vegna útlendinga í vanda Jón Hákon Halldórsson skrifar 22. ágúst 2014 07:00 Vísir/Grafík
Stöðug fjölgun hefur verið á verkefnum lögreglu sem tengjast fólki með erlent ríkisfang síðustu árin. Slík verkefni eru flest í júlí og ágúst. Í fyrra voru verkefnin 23% fleiri en árið 2012. Á tímabilinu janúar til júlí voru verkefnin 27% fleiri árið 2014 en á sama tímabili árið 2013. Þarna er ekki átt við hegningarlagabrot, heldur önnur verkefni. Samkvæmt upplýsingum frá Ríkislögreglustjóra eru 70% þeirra tengd ökutækjum, til dæmis umferðaróhöpp.Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri.Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri tekur fram að hún hafi ekki séð tölfræði lögreglunnar. Hún segir þó almennt að mikilvægt sé að gætt sé að öryggi ferðamanna. Hún segir að það þurfi því miður ekki að koma á óvart að samhliða fjölgun ferðamanna þá fjölgi óhöppum sem ferðmenn lenda í. Fjölgun ferðamanna á Íslandi á milli áranna 2012 og 2013 var rétt rúmlega 20%. Árin 2011 og 2012 var hún um nítján prósent. „Það er ekkert sem bendir til þess að aukningin verði minni í ár en á síðustu árum. Það kallar á það að við séum á tánum með upplýsingagjöf til ferðamanna,“ segir Ólöf. Á sama tíma séu æ fleiri sem kjósa að ferðast á eigin vegum. Það geti líka skýrt þessa aukningu að einhverju leyti. „Með því er ég alls ekki að draga úr mikilvægi þess að okkur sé umhugað um það að veita gestum okkar sem mestar upplýsingar. En því miður þá er það bara þannig að fólk lendir í óhöppum,“ segir hún.Jónas Guðmundsson verkefnastjóri slysavarna ferðamannaÓlöf Ýrr segir að það hafi orðið þróun í því sem kallast upplifunarhagkerfið. Fólk vilji eiga sína eigin upplifun og persónugera hana. „Það lýsir sér þá í því að fólk kemur hingað og vill ekki ferðast í hópi nema að hluta til,“ segir hún. En það er ekki einungis umferð á vegum sem þarf að hafa í huga þegar ferðamönnum fjölgar eins mikið og á Íslandi undanfarin misseri. Jónas Guðmundsson, verkefnastjóri slysavarna ferðamanna hjá Landsbjörg, segist telja að það hafi verið meira um óhöpp, slys og veikindi, en undanfarin ár, en Landsbjörg eigi ekki tiltækar tölfræðiupplýsingar um það.Hópur ferðamanna Ólöf Ýrr Atladóttir segir ferðamenn ekki alltaf vilja vera í hópum heldur skapa eigin upplifun.fréttablaðið/GVA„Það er í sjálfu sér bara tilfinning en ég held að hún sé rétt,“ segir hann. Jónas segist ekki hafa skýringu á þessari fjölgun óhappa. „Það eina sem okkur dettur í hug er að á ákveðnum stöðum, eins og í Landmannalaugum, hafi fólki fjölgað þó að því hafi almennt fækkað á hálendinu. Þar sem er fleira fólk verða fleiri óhöpp, en líka er það óumdeilanlegt að innviðirnir eru lakari. Stígar og vegir og annað lætur á sjá og það gæti verið orsök. En ég tek það fram að þetta eru allt hugleiðingar enn þá. Við erum ekki búin að telja upp úr kössunum,“ segir hann.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Fleiri fréttir Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Sjá meira