Vilja heilsugæslu á hendi sveitarfélaga Sveinn Arnarsson skrifar 22. ágúst 2014 19:00 Heilsugæslan á Akureyri Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að ríkið taki yfir rekstur heilsugæslunnar á Akureyri frá og með næstu áramótum. Fréttablaðið/Völundur
Ekki eru allir sáttir við ákvörðun Kristjáns Þórs Júliussonar um að ríkisvaldið taki yfir rekstur Heilsugæslunnar á Akureyri (HAK). Um næstu áramót mun rekstur HAK færast frá sveitarfélaginu til ríkisins. Samningar um rekstur heilsugæslunnar voru fyrst undirritaðir milli aðilanna árið 1997, þá sem tilraunaverkefni en síðar með þjónustusamningi við ríkið. Akureyrarbær vill enn halda í reksturinn en mætir ekki skilningi ríkisvaldsins. Fréttablaðið hefur áður greint frá því að fjármagn vanti inn í samninginn til að bæjarfélagið geti staðið undir rekstrinum. Á árinu hefur bæjarfélagið notað skattpeninga bæjarins til að reka heilsugæsluna þrátt fyrir að ríkisvaldið eigi að greiða fyrir reksturinn samkvæmt lögum.Kristján Þór JúlíussonKristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherravar meðflutningsmaður þingsályktunartillögu Ragnheiðar Ríkharðsdóttur, á síðasta kjörtímabili, um að setja ætti tímasetta áætlun um að færa rekstur heilsugæslustöðva landsins frá ríki til sveitarfélaga. Kristján Þór er enn á þeirri skoðun að ræða ætti þessa hluti en telur að við núverandi aðstæður sé ekki æskilegt að flytja heilsugæsluna með öllu til sveitarfélaga. „Í þeirri stöðu sem heilsugæslan er núna tel ég þurfa að ljúka öðrum málum áður en til flutnings heilsugæslunnar kæmi. Ég mun hins vegar taka vel í að skoða þesssi mál ef þingsályktun af þessu tagi verður borin fram aftur.“ Þórunn Egilsdóttir, þingkona Framsóknarflokksins í NA-kjördæmi og fyrsti varaformaður Velferðarnefndar telur Akureyrarbæ geta vel rekið heilsugæsluþjónustu og að hún eigi með réttu heima hjá sveitarfélögunum. „Ég tel það vera betra að hafa nærþjónustuna sem næst íbúum en sveitarfélög verða að hafa burði til að reka stofnanirnar. Akureyri hefur það og ríkisvaldið verður að tryggja að tekjustofnarnir séu í lagi hvað það varðar,“ segir Þórunn.Ragnheiður RíkharðsdóttirVísirRagnheiður Ríkharðsdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, telur að sveitarfélög eigi að taka yfir rekstur nærþjónustunnar. Það sé hennar vilji að þingsályktun þess efnis verði samþykkt á næsta þingvetri. „Þingsályktunartillaga sem ég flutti þess efnis á síðasta kjörtímabili náði ekki fram að ganga. Ég mun í upphafi þings óska eftir því við minn þingflokk að ég fái að bera fram þessa þingsályktunartillögu á komandi þingi.“
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira