Hjólaði hringinn með Parkinson ingvar haraldsson skrifar 22. ágúst 2014 15:51 Snorri Már Snorrason hjólaði Vestfirðina í sumar þrátt fyrir að hafa barist við Parkinson undanfarin áratug. mynd/skemmtiferðin
Snorri Már Snorrason greindist með Parkinson sjúkdóminn fyrir tíu árum síðan. Þrátt fyrir að hafa oft fengið skilaboð um að hann ætti að fara sér rólega hreyfir Snorri sig daglega. „Ég mæti alla daga í ræktina klukkan hálf sjö og er búinn með tveggja tíma prógramm áður en ég mæti í vinnuna. Tölfræðin segir mér að ég eigi að vera verri en ég er en ég vona að aðrir sjái hvað þetta gerir mér gott.“ Í sumar hjólaði Snorri Vestfirðina en árið 2012 hjólaði hann hringveginn. Snorri hefur ekki safnað áheitum í formi peninga heldur viljað hvetja fólk til að stunda heilbrigt líferni. „Ég hef reynt að predika fyrir öðrum að hreyfa sig. Til að sýna fólki að þetta sé hægt ákvað ég að hjóla hringinn 2012 og safna áheitum í formi hreyfingar. Ég fór annan hring í sumar um Vestfirðina til að benda fólki á að úr því sem fólk eins og ég getur hreyft sig þá geta það flest allir.“ segir Snorri og bætir við að ferðin hafi verið erfið; rigning og rok gerðu Snorra lífið leitt. „Ég hef sagt að ferðin væri í boði Veðurstofunnar.“ Snorri segir að þrátt fyrir að sjúkdómurinn takmarki hann þá sé hreyfing honum lífsnauðsynleg. „Ég losna við verki af því að hreyfa mig. Ég lenti tvisvar inn á spítala í fyrra út af bakinu og fólk var að segja að ég ætti að fara í skurðaðgerð. En ég og læknarnir voru sammála um að ég ætti að frekar að fara út að hreyfa mig. Verkirnir hafa minnkað mikið síðan þá. Parkinson sjúkdómurinn herjar á bakið á mér og krumpar mig saman en hreyfingin og teygjurnar rétta úr mér og halda mér beinum.“Parkinson er ekki dauðadómur Snorri segir sjúkdóminn engan dauðadóm. „Ég hef alltaf sagt að Parkinson fer ekki með mig í gröfina en hann fer með mér í gröfin og það er stór munur þar á.“ Að sögn Snorra ættu allir að hreyfa sig. „Það er sama hvort fólk sé með Parkinson eða heilbrigt. Það er bara virðingarvottur við þá sem eru í hjólastól og aðra sem geta ekki hreyft sig að stunda líkamsrækt“ segir Snorri en hann segir Parkinson sjúkdóminn mjög persónubundinn. „Ég var ungur þegar ég greinist og hafði mikið baráttuþrek. En það eru fleiri og fleiri rannsóknir sem sýna að fólk með heilabilanir og alzheimer sjúkdóminn getur spornað við þróun sjúkdómsins með því að stunda hreyfingu.“ Snorri mun halda fyrirlestur um hreyfingu og baráttur sína við Parkinson í Laugardalshöll klukkan 17:30 í dag í tilefni af Reykjavíkurmaraþoninu. Hér að neðan má sjá myndband af ferðalagi Snorra um Vestfirðina í sumar. Post by Skemmtiferðin.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Fleiri fréttir Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Sjá meira