Dýrslegt kynlíf með prjónuðum smokkum ingvar haraldsson skrifar 22. ágúst 2014 12:09 Eiríkur Valdimarsson, þjóðfræðingur segir fólk fyrr á öldum hafa verið líkara okkur en við höldum. Vísir/pjetur „
Kirkjan gaf út að trúboðinn væri stelling sem átti að virka og væri guði þóknanleg,“ segir Eiríkur Valdimarsson, þjóðfræðingur, sem mun halda fyrirlestur um kynlíf fyrri alda í Þjóðminjasafni Íslands klukkan átta á Menningarnótt. „En fólk í bændasamfélaginu hafði fyrir augunum kynlíf yfir fengitímann því þeir sáu hvernig kindurnar gerðu það. Það er hægt að leiða líkur að því að kirkjan hafi viljað berjast gegn einhverskonar dýrslegu kynlífi eða dýrslegum aðferðum.“ Að sögn Eiríks hefur kirkjan einnig viljað skipta sér að ýmsu öðru er varðar kynlíf. „Það var til dæmis bannað fólki að stunda kynlíf fyrir giftingu sem þýðir náttúrulega að fólk hefur verið að stunda kynlíf fyrir giftingu. Því eitthvað verður til þess að boð og bönn verða til.“ Hugmyndin að rannsóknarefninu fæddist á námskeiðinu „Lúsakambar, hlandkoppar og kynlíf“ sem Eiríkur kennir við Þjóðfræðideild Háskóla Íslands. „Nemendur höfðu mikinn áhuga á þessu efni, hvort, hvar og hvernig fólk stundaði kynlíf,“ segir Eiríkur og bætir við að hann hafi rekist á margskonar heimildir um efnið. „Það eru allskonar sögur af þjóðtrú og annað sem tengist kynlífi. Hvernig á að eignast stúlku, hvernig á að eignast strák og hvernig á að koma í veg fyrir að eignast börn.“Prjónaðir smokkar og hetturÞar nefnir Eiríkur heimatilbúnar getnaðarvarnir. „Konur voru að prjóna sér einhverskonar getnaðarvarnir úr mýksta þelinu sem þær settu upp í leggöngin til að koma í veg fyrir getnað. Dæmi eru um að karlar hafi fengið prjónaða smokka sem auðvitað virkuðu ekki rassgat eins og gefur að skilja. Menn geta ímyndað sér hversu þægilegt hefur verið að stunda kynlíf með þetta.“ Eiríkur segir fólk í gamla bændasamfélaginu hafi verið líkara okkur en við höldum:„Okkur finnst þetta mjög fyndið en þetta gamla steríla skítuga bændasamfélag sem við höfum búið til ákveðna ímynd í huga okkar um var miklu líkara því samfélagi sem við búum í. Það er búið að búa til einhverja ímynd en auðvitað voru þetta bara manneskjur með tilfinningar og pælingar.“
Mest lesið Sumarstarfsmaður stal sjö milljónum af Happdrætti Háskóla Íslands Innlent Gríðarlegur verðmunur á þyngdarstjórnunarlyfjum Innlent Upptaka náðist af alvarlegu umferðarslysi Innlent „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Erlent Fisk rekur á land á Stokkseyri – Fólk sækir sér í soðið Innlent Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Erlent Þriggja bíla árekstur varð á Hafnarfjarðarvegi við Arnarnes Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Soham-morðinginn látinn Erlent Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Erlent Fleiri fréttir Þriggja bíla árekstur varð á Hafnarfjarðarvegi við Arnarnes Sumarstarfsmaður stal sjö milljónum af Happdrætti Háskóla Íslands Gríðarlegur verðmunur á þyngdarstjórnunarlyfjum Þónokkuð margir búnir að stytta leikskólavist á föstudögum Þær skipa efstu sæti lista Vor til vinstri Samfylkingin sé að vinna mót „í vondri pólitík“ Krúttlegir heimilishundar verða að sleðahundum við Mývatn „Ég tel þetta ekki vera ákveðna höfnun á Alexöndru“ Þrír með gervigreind leysa af tæplega tuttugu manna teymi Fisk rekur á land á Stokkseyri – Fólk sækir sér í soðið Kvenfélagskonur eru orðnar þreyttar á heilbrigðiskerfinu „Evrópusambandið hefur meiri hag af því núna að mæta óskum Íslands“ Loka veginum til morguns vegna snjóflóðs Gerir ráð fyrir harkalegri umræðu um þjóðaratkvæðagreiðsluna Hafa ekki náð á 26 Íslendinga í Mið-Austurlöndum Upptaka náðist af alvarlegu umferðarslysi Tveir á slysadeild með áverka í andliti Einn drengur í meðferð á nýju meðferðarheimili Tveir grunaðir um stórfellda líkamsárás í miðbænum Segir hvorki Jesú, Múhameð né Þór hafna yfir lög Þurfi ekki að óttast bílnúmeralesara við Sorpu Listamönnum fækkar ört Alvöru inniveður um helgina Kristinn hafði betur gegn Alexöndru og verður oddviti Pírata Selfosskirkja 70 ára og kirkjukórinn 80 ára Kjartan og Marta til liðs við Miðflokkinn Útiloka að þjóðaratkvæðagreiðslan fái hraða afgreiðslu Rætt við stjórnarandstöðuna um atkvæðagreiðslu um ESB Truflanir víða vegna eldingaveðurs Hvalfjarðargöng lokuð Sjá meira