Stúlkan sem greindist með E.coli komin heim Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 3. maí 2014 13:07 vísir/vilhelm
Stúlkan sem veiktist af E.coli-bakteríu í byrjun mars mánaðar er komin til síns heima á Akureyri. Nýru stúlkunnar, sem er tveggja ára gömul, voru hætt að virka og var hún um tíma í öndunarvél og blóðskilun. Vikudagur greinir frá þessu. Amma stúlkunnar sagði í samtali við Vikudag að nýru hennar séu farin að starfa um fimmtíu prósent. Hún fari reglulega á Sjúkrahúsið á Akureyri í blóðprufur og fylgst sé með henni þar. Þá sé hún í sjúkraþjálfun en þetta muni taka tíma. Flytja þurfti stúlkuna með sjúkraflugi til Reykjavíkur og var hún undir ströngu eftirliti á Landspítalanum í nokkrar vikur. Hún var meðhöndluð á gjörgæsludeild Landspítalans með blæðandi garnasýkingu af völdum E.coli bakteríu, sem myndar eiturefni. Rannsókn málsins hefur beinst að því að finna fleiri tilfelli og frá hvaða matvælum sýkingin kann að hafa borist. Sýkingin er meðal annars að finna í nautgripum og afurðum þeirra. Þá er ekki talið að matur á leikskóla stúlkunnar, né á heimili hennar hafi orsakað veikindin.E.coli-bakterían framleiðir ákveðna tegund eiturefnis að sögn Guðrúnar Sigmundsdóttur, yfirlæknis á sóttvarnasviði hjá embætti Landslæknis. Eiturefnið getur valdið slæmum veikindum og þá sérstaklega hjá ungum börnum. Þá segir hún að þessi baktería greinist í tvö til þrjú skipti á ári og þetta tilfelli virðist eitt af þeim. Í tilviki stúlkunnar var hennar nánasta umhverfi verið rannsakað í þaula í samstarfi við Matvælastofnun og heilbrigðisfulltrúa og lækna á Akureyri. Ekkert hafi fundist sem gat skýrt hvers vegna hún smitaðist. Í tilkynningu landlæknisembættisins kemur fram að til að draga úr líkum á smiti sé mikilvægt að hreinlætis sé gætt, með því að þvo sér oft um hendur, tryggja fullnægjandi hitun matvæla þar sem það á við, koma í veg fyrir krossmengun matvæla og skola vel grænmeti.
Tengdar fréttir Tveggja ára stúlka með E.coli-bakteríu - Fá tilfelli á ári Stúlkan þurfti að vera í öndunarvél á Landspítalnum í tvær vikur. 27. mars 2014 15:01 Stúlkan sem greindist með E.coli á batavegi Fyrir tæplega þremur vikum veiktist tveggja og hálfs ár gömul stúlka til heimilis á Akureyri af blæðandi garnasýkingu af völdum E. coli bakteríu, sem myndar eiturefni. Stúlkan var meðhöndluð á gjörgæsludeild Landspítalans og er á batavegi. 31. mars 2014 14:01 Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira
Tveggja ára stúlka með E.coli-bakteríu - Fá tilfelli á ári Stúlkan þurfti að vera í öndunarvél á Landspítalnum í tvær vikur. 27. mars 2014 15:01
Stúlkan sem greindist með E.coli á batavegi Fyrir tæplega þremur vikum veiktist tveggja og hálfs ár gömul stúlka til heimilis á Akureyri af blæðandi garnasýkingu af völdum E. coli bakteríu, sem myndar eiturefni. Stúlkan var meðhöndluð á gjörgæsludeild Landspítalans og er á batavegi. 31. mars 2014 14:01