„Koma gömlu konurnar, eina ferðina enn!“ Hrund Þórsdóttir skrifar 23. október 2014 20:00
Tvær systur ætla sér að ganga allar götur á höfuðborgarsvæðinu og eru komnar vel áleiðis með verkið. Þær fara út í öllum veðrum og stefna jafnvel á að ganga til Ísafjarðar næsta sumar. Hugmyndin kviknaði því þær Elfa Björk og Guðríður Benediktsdætur vildu koma skipulagi á gönguferðir sínar. Þær ákváðu að ganga markvisst um borgina og merkja við gengnar götur á kortum úr símaskránni. Þær þekkja orðið höfuðborgarsvæðið betur en flestir og er gamli miðbærinn í uppáhaldi. „Mér fannst líka gaman að sjá hvað hefur tekist vel til í Grafarholtinu og þessum nýju hverfum, hvað þau eru fjölskyldu- og íbúavæn,“ segir Elfa. Þær systur hafa þegar gengið allar götur í Kópavogi og á Kjalarnesi, í Breiðholti og Norðlingaholti, sem og í Grafarholti og Grafarvogi. Þá hafa þær gengið Reykjavík úr austri og alla leið vestur fyrir Snorrabraut og samkvæmt okkar útreikningum eru þetta samtals yfir 500 kílómetrar, varlega áætlað. „Þegar við heyrðum að þetta væru orðnir svona margir kílómetrar sem við værum búnar að leggja að baki, þá kom upp hvort við ættum ekki bara að labba til Ísafjarðar í sumar,“ segir Guðríður og þær hlæja báðar. Á göngu um borgina gerist ýmislegt skemmtilegt og við eina götu Reykjavíkurborgar segja þær systur flest húsin skarta alveg eins gardínum. „Svo var einn ægilega sætur ungur maður á reiðhjóli sem var búinn að mæta okkur mörgum sinnum, ég held að þetta hafi verið á Hjallaveginum eða þar í kring. Við vorum búnar að fara fram og til baka göturnar og þá segir hann: „Koma gömlu konurnar, eina ferðina enn!“. Það gerði gæfumuninn þann daginn,“ segir Elfa og þær skellihlæja. Þær segja notalegt að þekkja göngufélagann vel. „Við erum mjög nánar og blöðrum um allt milli himins og jarðar en við getum líka arkað áfram steinþegjandi og okkur líður samt vel,“ segir Guðríður að lokkum.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira