Braut gegn barnungum systrum Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 23. október 2014 17:06 Vísir/vilhelm
Hæstiréttur Íslands þyngdi í dag dóm yfir Roberti Tomasz Czarny, úr fjögurra ára fangelsi í sex ár fyrir kynferðisbrot gegn tveimur barnungum systrum. Önnur stúlkan var á aldrinum átta til þrettán ára þegar brotin áttu sér stað á árunum 2008 til 2012. Hin stúlkan var tólf ára en þau brot áttu sér stað árið 2008. Honum er gert að greiða stúlkunum samtals sjö milljónir króna. Í dómi Hæstaréttar segir að maðurinn hafi gerst sekur um alvarleg margendurtekin kynferðisbrot gegn tveimur börnum. Brotin hafi staðið yfir í langan tíma er hann dvaldi sem gestur á heimili þeirra. Maðurinn hafi nýtt sér aðstöðumun og trúnaðartraust stúlknanna og eigi sér engar málsbætur. Í ákærunni segir að Robert hafi brotið gegn annarri stúlkunni á tímabilinu 2007-2012 hafa „ítrekað káfað á líkama hennar og kynfærum með höndunum, margoft kysst hana tungukossum á munninn og reynt að láta hana snerta á sér kynfærin, að minnsta kosti í tvö aðgreind skipti látið kynfærin nema við rass og endaþarmsop hennar og að minnsta kosti í tuttugu og fimm skipti nuddað kynfærunum upp við og inn í kynfæri hennar.“ Ákæruliðir gagnvart hinni stúlkunni eru fjórir. Roberti er meðal annars gefið að sök að hafa ítrekað káfað á kynfærum hennar og líkama, reynt að hafa við hana samræði og að hafa ítrekað beðið hana um að snerta á honum kynfærin.Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur hinn 8. maí síðastliðinn þar sem Robert var dæmdur í fjögurra ára fangelsi og var gert að greiða stúlkunum samtals fimm milljónir króna í bætur.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira