Sport

Frábær skemmtun framundan

Hjörvar Hafliðason, knattspyrnumaður í Pepsi-mörkunum á Stöð 2 Sport
Hjörvar Hafliðason, knattspyrnumaður í Pepsi-mörkunum á Stöð 2 Sport
Stöð 2 Sport og visir.is munu sýna beint frá öllum íþróttagreinum á Vetrarólympíuleikunum í Rússlandi. Auk þeirra verður samantektarþáttur sýndur öll kvöld kl. 22 þar sem farið verður yfir úrslit dagsins og málin rædd.

Að sögn Hjörvars Hafliðasonar, dagskrárstjóra Stöðvar 2 Sports, munu Rússar leggja allt undir til að gera útsendingar frá Vetrarólympíuleikunum sem glæsilegastar. „Þetta eiga eftir að vera rosalegar útsendingar með frábærri myndvinnslu. Áður en landsmenn vita verða þeir farnir að horfa á Vetrarólympíuleikana á hverjum degi enda eiga þeir eftir að verða stórskemmtilegir.“

Fyrirtækið 365 verður með einkarétt á streymingu efnis gegnum síma og vef. Nær allt efni frá leikunum sem Stöð 2 Sport sýnir verður í beinni útsendingu á visir.is og þar með í snjallsímum. Auk þess geta þeir sem hafa Oz-appið fylgst með beinum útsendingum á Stöð 2 Sport, bæði í iPhone- og Android-snjallsímum.

„Setningarhátíðin verður sýnd í beinni útsendingu og eftir hana tekur við hver stórviðburðurinn eftir annan. Íshokkíkeppnin byrjar með látum en nokkrar af bestu þjóðum heims mætast strax í riðlakeppninni. Þá verða allir bestu íshokkímenn heims á leikunum, til dæmis Sidney Crosby, Alexander Ovechkin og Henrik Lundquist.“

Íslendingar eiga einn keppanda í skíðagöngu og fjóra í alpagreinum og segir Hjörvar að vel verði fylgst með þeim. „Sævar Birgisson keppir í sprettgöngu sem er virkilega skemmtilegt sjónvarpsefni. Þar mun mikill snillingur aðstoða okkur við lýsinguna sem er Jakob Einar Jakobsson, okkar helsti sérfræðingur í skíðagöngu og skíðaskotfimi. Fjórar ungir og efnilegir skíðamenn taka þátt í alpagreinum en sú grein skipar alltaf stóran sess á Vetrarólympíuleikunum.“

Hjörvar nefnir einnig bobsleðakeppnina en þar snýr lið Jamaíku aftur til leiks eftir nokkurra ára fjarveru. Landslið þeirra vakti heimsathygli þegar það keppti fyrst á Vetrarólympíuleikunum í Kanada árið 1988 eins og greint var frá síðar í kvikmyndinni vinsælu Cool Runnings. „Áhugafólk um þokkafullar hreyfingar ætti síðan ekki að láta skautadansinn framhjá sér fara og einnig má nefna skautahlaupið sem er í raun spretthlaup á ís.“

Setningarathöfn Vetrarólympíuleikanna hefst 7. febrúar en undankeppni í nokkrum greinum hefst degi fyrr. Nánari upplýsingar um dagskrána má finna á visir.is og stod2.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×